Frétt
Listería í laxa- og rækjusalati frá Sóma
Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af laxa- og rækjusalati frá Sóma ehf. vegna listeríu (Listeria monocytogenes) sem greindist í reglulegu eftirliti fyrirtækisins. Sómi hefur ákveðið að innkalla salatið af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Sómi ehf.
- Vöruheiti: Laxa og rækjusalat
- Strikamerki: 5690596069045
- Umbúðir: Plastbox
- Nettómagn: 200g
- Pökkunardagur: 06.03.2019
- Best fyrir: 16.03.2019
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Verslanir um allt land
Neytendur sem keypt hafa laxa- og rækjusalat með ofangreindum upplýsingum eru beðnir um að skila vörunni í viðkomandi verslun, farga henni eða skila beint til Sóma ehf.
Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi t.d. aldraðir. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun17 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni19 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




