Markaðurinn
Lambapottréttur að hætti Frakka með perlubyggsalati
Hráefni
Franskur lambapottréttur
1 kg lambaframhryggjarsneiðar
4 msk olía
2 laukar, sneiddir í báta
2 gulrætur, grófskornar
1 blaðlaukur, skorinn í sneiðar
2 msk tómatþykkni
300 ml þurrt rauðvín
0.5 lítri soð (eða vatn og kjötkraftur)
2 tsk dijonsinnep
1-2 lárviðarlauf
1 tsk timjan, þurrkað
0.5 tsk oregano, þurrkað
Sveppa og perlubyggssalat
100 gr perlubygg
500 ml vatn
1 shallot laukur
100 g sveppir
3 msk ólífu olía
Leiðbeiningar
Franskur lambapottréttur
- Hitið ofnin í 160°C.
- Þerrið kjötið með eldhúspappír og kryddið með pipar og salti eftir smekk.
- Setjið olíu í þykkbotna pott, hitið hana og brúnið kjötið við miðlungsháan hita. Best er að brúna kjötið í 2-3 skömmtum svo ekki sé of mikið af kjöti í pottinum. Setjið kjötið til hliðar og steikið grænmeti á meðalhita þar til það byrjar að brúnast.
- Bætið tómatþykkni saman við og helmingi af víni í pottinn. Hækkið hitann og látið sjóða þar til mest allt vínið hefur gufað upp.
- Bætið við soði, sinnepi og kryddjurtum og hrærið vel.
- Setjið kjötið aftur í pottinn og pottlokið ofan á og inn í ofn í klukkustund.
- Taktið kjötið upp úr, setjið á fat og haldið því heitu. Smakkið til með pipar og salti og berið fram í pottinum.
Sveppa og perlubyggssalat
- Setjið perlubygg og vatn í pott og sjóðið á lágum hita í 30 mínútur. Sigtið vatnið frá
- Skerið shallot lauk og sveppi í bita og steikið á pönnu í 3-4 mínútur.
- Bætið perlubyggi við og kryddið með salt og pipar eftir smekk.
Mynd og uppskrift: islensktlambakjot.is
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn5 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar42 minutes síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




