Vertu memm

Veitingarýni

Kvöldverðarsigling um Faxaflóa

Birting:

þann

Kopar - Special Tours - Kvöldverðarsigling um Faxaflóa

Föstudaginn 13. sl. var haldið á haf út í jólahátíðarsiglingu sem veitingastaðurinn Kopar hefur haldið í samstarfi við Special Tours á hvalskoðunarbátnum Andreu. Hlýlega var tekið á móti okkur af Ástu Guðrúnu ein eiganda Kopars og hennar staffi um borð, Kir Royal klassík í fordrykk svo var okkur vísað til borðs á efra dekki.

Kopar - Special Tours - Kvöldverðarsigling um Faxaflóa

Valin voru tvö skotheld vín með matnum frá Baróninum í Barossa Peter Lehmann Wildcard Chardonnay og svo Shiraz í rauðu. Veðrið var gott, algjör stilla og ekki spillti fyrir jólaandanum að Helga Möller söng yfir borðhaldi.

 

Flott brauðkarfa með þeyttu smjöri og birkifræjum.

Flott brauðkarfa með þeyttu smjöri og birkifræjum.

Forréttur: Bláberjalax Grafinn lax með dilli, bláberjum og sinnepssósu.

Forréttur: Bláberjalax
Grafinn lax með dilli, bláberjum og sinnepssósu.

Prýðisgóður graflax, passlegt bláberjabragð og sinnepssósan æði

Milliréttur: Jólasaltfisk salat Hægeldaður þorskur með vínberjum, pekan hnetum og rauðbeðum.

Milliréttur: Jólasaltfisk salat
Hægeldaður þorskur með vínberjum, pekan hnetum og rauðbeðum.

Kaldur réttur, nokkurskonar saltfisk brandade með rauðum vínberjum líka, ofboðslega ferskur og bragðgóður réttur með stökku salati, hárrétt bragð sett saman.

Aðalréttur: Heilsteikt Nautalund og Waldorf Íslensk nautalund borin fram sykurbrúnaðri kartöflumús, rósamarín ilmuðum soðgljáa og Waldorf salati.

Aðalréttur: Heilsteikt Nautalund og Waldorf
Íslensk nautalund borin fram sykurbrúnaðri kartöflumús, rósamarín ilmuðum soðgljáa og Waldorf salati.

Ég hef aldrei fengið mér Waldorf salat með nautasteik en þarna var eitthvað rétt við þetta, jú jólameðlæti og jólaandinn svífandi og til að toppa þetta voru súkkulaði rúsínur í þessu, hélt fyrst að Jóel kokkur væri að rugla í mér, frábær eldun á nauti, ilmríkt og bragðgott meðlæti, öðruvísi.

Eftirréttur: Tiramisu Súkkulaði, kaffi og rjómaostur.

Eftirréttur: Tiramisu
Súkkulaði, kaffi og rjómaostur.

Alveg frá því ég var barn hef ég verið hrifinn að fá mat í krukku og hér var enginn breyting á, fínasta Tiramisu, létt ásamt kirsuberjum og kryddköku.

Þessi sigling fór eiginlega fram úr mínum vonum, vissi svo sem að veitingahúsið Kopar mundi nú ekki senda eitthvað meðal frá sér en ég hef aldrei borðað almennilegan mat um borð á skipi fyrr en nú, þó víða hef nú farið.

Preppið skiptir þó öllu í svona þó svo aðstaðan um borð til að dekka upp diskum hafi verið þröng, einn ofn o.fl. en virkilega vel leyst og maður fann ekki fyrir neinum hnökrum og svo bara þessi fínasti bar um borð.

Við fórum heim með ljúfar minningar, góður matur og þjónusta, útsýnið æðislegt og við alveg afslöppuð með jólasöng dívunar Helgu Möller inn í nóttina ,,Ég kemst í hátíðaskap,,,,,,,,,

Takk fyrir okkur Ásta, Ylfa og Jóel Sauðkrókur 😉 bravó.

Tolli er framreiðslumaður að mennt og Certified Sommelier frá Court of Master Sommelier, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára. Tolli hefur verið í stjórn Vínþjónasamtaka frá árinu 2001 og sá eini sem hefur gegnt öllum störfum samtakanna, nú sem ritari og gjaldkeri. Tolli starfaði lengst af í Perlunni og var stofneigandi af Sommelier Brasserie við hverfisgötu forðum daga, í dag starfar hann hjá víninnflytjanda Globus. Hægt er að hafa samband við Tolla á netfangið [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið