Markaðurinn
Eftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
Ostakökurnar frá MS hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og er því alltaf gaman þegar nýjar kökur líta dagsins ljós.
Mokka ostakaka er nýjasta viðbótin í vörulínunni en þar mætir bragðmikill kexbotn silkimjúkri og ómótstæðilegri ostakökufyllingu með mokkabragði og nokkuð víst að þessi mun slá í gegn í næsta saumaklúbbi, matarboði eða afmæli.
Þessi ljúffenga kaka er á leiðinni í verslanir á næstu dögum svo ostakökuunnendur þurfa ekki að bíða of lengi eftir að smakka.
Auglýsingastofan Hvíta húsið fékk það skemmtilega hlutverk að hanna útlitið á nýju ostakökunni og var það myndlistarkonan Salvör Sólnes sem á heiðurinn að nýju umbúðunum.
Verk Salvavar vinna með samspil lífrænna efna úr ýmsum áttum og notaði hún kaffi við skissu- og hugmyndavinnu og óhætt að segja að útkoman sé sannkallað listaverk.
Ekki flækja hlutina þegar þú þarft þess ekki og veldu þér einfaldan og bragðgóðan eftirrétt á borð við ljúffenga Mokka ostaköku, þegar þú vilt gera vel við þig og þína.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október




