Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Kokteilar, keramik og góð stemning hjá Noztru á Granda

Birting:

þann

Á morgun, fimmtudaginn 12. mars, verður áhugasömum boðið að koma og mála á keramik í notalegu og skapandi umhverfi hjá Noztru, ásamt því að njóta ljúffengra drykkja frá Marberg.

Birgir Már, master distiller, verður á staðnum til að afgreiða drykki og segja fólki frá gininu, en auk þess verður starfsfólk Noztru á sínum stað til þess að veita ráð og leiðbeina við keramikmálun. Þátttakendur fá fordrykk í boði Marberg en stendur einnig til boða að kaupa fleiri kokteila eða óafenga drykki á barnum.

Fyrir þá sem hafa ekki enn látið verða af því að heimsækja Noztru úti á Granda þá er þetta afskaplega einfalt. Noztra býður til sölu forbrennda leirmuni sem fólk fær að velja úr til þess að mála. Eftir að gestir hafa búið til sín listaverk eru leirmunirnir glerjaðir og brenndir. Nokkrum dögum síðar sækir fólk svo muninn sinn.

Þetta er viðburður sem þú mátt ekki missa af. Hóaðu vinahópinn saman og kíktu á Noztra þann 12. mars klukkan 17:00 og kveiktu í sköpunargleðinni!

Mundu eftir því að skrá þig á viðburðinn með því að smella hér.

Almenn umfjöllun, víndómar og viðtöl, blandað ýmsum fróðleik um Ísland, mat, drykki og fleira því tengt.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið