Uppskriftir
Kókosostakaka með ástríðuávaxtasósu
Botn
400 gr hafrakex
50 gr smjör
Myljið kexið fínt og blandið saman við brætt smjörið. Þrýstið kexblöndunni í form og kælið á meðan þið gerið fyllinguna.
Mér finnst best að nota smelluform og setja bökunarpappír í botninn, þá er auðveldast að ná kökunni úr.
Kókosostakaka
7 gr matarlím
500 gr kókosrjómi
150 gr flórsykur
400 gr rjómaostur
250 gr rjómi
1 tsk vanilla
Matarlímið er lagt í bleyti. Setjið rjómaost í hrærivélaskál og mýkið hann aðeins upp. Bætið síðan við flórsykri, kókosrjóma og vanillu. Takið matarlímið uppúr vatninu og setjið í lítinn pott og bræðið það. Þetta tekur nokkrar sekúndur og má alls ekki brenna. Blandið bræddu matarlíminu svo saman við rjómaostablönduna.
Þeytið rjómann og blandið rjómaostablöndunni varlega saman við með sleif.
Setjið í form ofan á kexbotninn og kælið yfir nótt.
Kókos mulningur
50 gr hveiti
50 gr sykur
60 gr smjör
60 gr kókosflögur
Setjið hveiti, sykur og smjör í skál og blandið vel saman með höndunum.
Dreifið á bökunarplötu og bakið við 180° þar til blandan verður gullinbrún.
Bakið einnig kókosflögurnar á sér bakka því þær taka aðeins nokkrar mínútur.
Blandið síðan öllu saman.
Passion sósa
3 stk passion
100 gr sykur
Safi úr 1/2 lime
Allt sett saman í lítinn pott og fengin upp suða.
Kakan er síðan sett á disk þegar hún er orðin stíf. Síðan fer sósan og kókos mulningurinn ofan á.
Höfundur er Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, matreiðslumeistari.
Instagram: @erlathorabergmann
-
Keppni7 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn7 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn2 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Markaðurinn4 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn4 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni




