Smári Valtýr Sæbjörnsson
Klúbbur Framreiðslumeistara stofnaður
Í gegnum tíðina hefur með jöfnu millibili skotið upp kollinum umræða um stofnun klúbbs þar sem framreiðslumeistarar gætu haft vettvang til umræðu og skoðannaskipta um fagleg málefni.
Fyrir um ári kom saman hópur með það í huga að stofna samtök/samráðhóp með þessi markmið að leiðarljósi. Mánudaginn 1. desember var síðan haldinn fyrsti fundur til stofnunar Klúbbs Framreiðslumeistara.
Mættu 18 meistarar til fundarins sem fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í MK. Komu fram hugmyndir um hver áherslu atriði klúbbsins yrðu og voru t.d. rædd mál sem snúa að þjónustu almennt hér á landi og einnig þátttaka í erlendu samstarfi, í fagkeppnum o.fl. Voru fundarmenn ánægðir með þær hugmyndir sem fram komu og voru umræður góðar og mikill áhugi fyrir stofnun klúbbsins.
Ákveðið var að næsti fundur Klúbbs Framreiðslumeistara verði haldinn á Stórhöfða 31 mánudaginn 19. janúar 2015 kl. 16:00. Farið verður yfir hugmyndir undirbúningsnefndar er snúa að því hvernig starfsemi klúbbsins verði háttað og þau verkefni sem hann myndi taka að sér á komandi misserum.
Gaman væri að sjá sem flesta framreiðslumeistara á Stórhöfða 19. janúar 2015.
Netfang klúbbsins er [email protected] og er hægt að senda inn fyrirspurnir og annað á netfangið.
Í undirbúningsnefnd klúbbsins eru:
Agnar Fjeldsted
Baldur Sæmundsson
Gígja Magnúsdóttir
Hörður Sigurjónsson
Trausti Víglundsson
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Þormóðsdóttir
Greint frá í nýjasta Matvís blaðinu.
![]()
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




