Bocuse d´Or
Keppnisröð Bocuse d’Or 2026 liggur fyrir, Snædís keppir 16. mars í Marseille
Skipulag keppnisdaga og keppnisröð hefur nú verið staðfest fyrir evrópska undankeppni Bocuse d’Or Europe sem fram fer í Marseille dagana 15. og 16. mars 2026.
Alls keppa tuttugu þjóðir í undankeppninni, skipt niður á tvo keppnisdaga. Keppnisröðin er nákvæmlega tímasett og hafa liðin hvert sitt keppnisslot þar sem þau takast á við skylduverkefni keppninnar, bæði á disk og fat.
Alls komast 10 þjóðir áfram úr evrópsku undankeppninni í Bocuse d’Or Europe í Marseille í aðalkeppnina Bocuse d’Or sem fer fram í Lyon árið 2027.
Evrópa er þannig stærsta svæðið hvað varðar sætafjölda í úrslitunum. Samtals taka 24 þjóðir þátt í úrslitunum í Lyon, þar af tíu frá Evrópu.
Það er Snædís Xyza Mae Jónsdóttir sem leiðir íslenska liðið sem kandídat Íslands í keppninni. Fyrir Snædísi og teymi hennar er þetta afar mikilvægur áfangi, þar sem frammistaða í Marseille ræður úrslitum um sæti í sjálfri Bocuse d’Or keppninni 2027.
- Snædís keppir 16. mars í Marseille
Snædís keppir seinni daginn, mánudaginn 16. mars, og er keppandi númer 2. Snædís byrjar að keppa klukkan 8:45 að morgni og lýkur keppni klukkan 15:00 síðdegis, samkvæmt opinberri dagskrá. Íslenska liðið keppir þar á eftir Danmörku og á undan Litháen, í keppnisdegi sem einnig inniheldur meðal annars Spán, Sviss, Ítalíu og Bretland.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands.
Mynd: facebook / Bocuse d´or Iceland Team Snædís Xyza
Keppnisdagarnir eru byggðir upp með strangri tímastýringu. Fyrst hefst keppnin með undirbúningi, þar á eftir kemur diskurinn sem byggir á sérstöku Miðjarðarhafsþema, áður en lokaverkið, fatið, er sent til dómnefndar. Keppnisdagur hvers liðs spannar rúmlega sex klukkustundir þar sem hvert smáatriði skiptir máli.
Myndir: Bocusedor.com
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð






