Keppni
Íslenska kokkalandsliðið keppir á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg næstkomandi helgi
Heimsmeistaramót í matreiðslu er haldið á fjögurra ára fresti og fer nú fram um helgina í Lúxemborg. Íslenska kokkalandsliðið fylgir eftir framúrskarandi árangri liðsins frá síðasta móti sem skilaði liðinu í 5. sæti.
Kokkalandsliðið vinnur með alíslenskar áherslur og kappkostar að nota sérvalið, sígilt, íslenskt hráefni. Þetta hráefni er notað til að útbúa þriggja rétta heita máltíð þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lamb og Ísey skyr verða í aðalhlutverkum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Kokkalandsliðinu.
Frú Eliza Reid er verndari Íslenska Kokkalandsliðsins
Stuðningur þjóðarinnar er Kokkalandsliðinu afar mikilvægur og er ánægjulegt að tilkynna að frú Eliza Reid forsetafrú hefur gerst verndari þess. Kokkalandsliðinu er það mikill heiður að frú Eliza veiti því með þeim hætti styrk í verkefnum þess. Kokkalandsliðið er skipað einstaklingum af báðum kynjum með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og færni sem virkjuð er til að þróa nútíma íslenskt eldhús og skapa jafnframt faginu fjölbreyttar fyrirmyndir.
Fjölbreytt og hollt hráefni
Frú Eliza Reid: „Kannski má segja að það að kynnast matarsmekk þjóðar sé um leið að fá innsýn í sálarlíf hennar. Á undanförnum árum hefur gróskan í íslenskri matargerðarlist aukist gríðarlega og þá kemur sér auðvitað vel að hafa aðgang að því fjölbreytta og holla hráefni sem hér er á boðstólum. Mér finnst afskaplega gaman að vera verndari Kokkalandsliðsins sem ætlar að sýna heiminum þessa áhugaverðu hlið hinnar íslensku þjóðarsálar og ég hlakka til samstarfs við þetta öfluga lið.“
Miðarnir á íslenska landsliðið seldust upp á 15 mínútum
Kokkalandsliðið hefur verið að leggja lokahönd á matseðla og ferla fyrir keppnina og æfir nú vikulega undir keppnina. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti sem eldaður er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Hluti gestanna eru dómarar, gestir keppninnar og svo hluti sætanna seldur á opnum markaði. Skemmst er frá því að segja að af öllum þeim landsliðum sem eru að keppa á mótinu þá seldist fyrst upp á Ísland, Noreg og Hong Kong en miðarnir fóru á tæpum 15 mínútum.
Landsliðið er leiðandi í þróun íslensks eldhúss og matarhefðar
Forseti Klúbbs matreiðslumanna er Björn Bragi Bragason en klúbburinn á og rekur Kokkalandsliðið; ,,Liðið keppir stolt fyrir hönd íslensku þjóðarinnar í alþjóðlegum stórkeppnum og þróar um leið íslenskt eldhús og matarhefðina. Við byggjum á gömlum merg hvað varðar hráefnin okkar en um leið fögnum við og tileinkum við okkur þær aðferðir, stefnur og strauma sem berast utan úr heimi. Kokkalandsliðið er samsett af hópi kvenna og karla, nútíma Íslendingum sem eiga uppruna sinn víða í veröldinni.“
Íslenskt hráefni í hávegum haft
Kokkalandsliðið vinnur með alíslenskar áherslur í gegnum keppnina og lögð er mikil áhersla á sérvalið sígilt íslenskt hráefni þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lamb og Ísey skyr verða í aðalhlutverkum.
Fylgstu með liðinu um helgina á facebook, instagram. Að auki verður veitingageirinn.is með góða umfjöllun um Kokkalandsliðið yfir helgina.
Kokkalandsliðið 2018 skipa, nöfn og vinnustaðir:
Þjálfari, Ylfa Helgadóttir, Kopar
Aðstoðarþjálfari, Jóhannes S. Jóhannesson, Landsvirkjun
Forseti Klúbbs Matreiðslumeistara, Björn Bragi Bragason, Síminn
Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo, Hótel Saga
Sigurjón Bragi Geirsson, Garri
Snorri Victor Gylfason, Vox Hilton hótel
Þorsteinn Geir Kristinsson, Fiskfélagið
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
Kara Guðmundsdóttir, Fiskfélagið
Denis Grbic, Grillið
Ari Þór Gunnarsson, Fiskfélagið
Hinrik Lárusson, Grillið
Myndir: aðsendar

-
Keppni2 dagar síðan
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
-
Keppni3 dagar síðan
Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins – Spennandi helgi framundan
-
Keppni2 dagar síðan
Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
-
Keppni1 dagur síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni7 klukkustundir síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna komið til Parísar – Heimsmeistaramótið framundan
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Gefðu hlutunum nýtt líf – skoðaðu úrvalið hjá Efnisveitunni
-
Keppni11 klukkustundir síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins