Markaðurinn
Icelandic Lamb Award of Excellence viðurkenningar veittar í þriðja sinn
Í mars hefur dómnefnd Icelandic Lamb Award of Excellence lagt mat á samstarfsaðila sína í veitingarekstri. Er þetta í þriðja sinn sem markaðsstofan Icelandic Lamb veitir Award of excellence viðurkenningar til veitingastaða sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári. Í dómnefndinni í ár sitja Eva Laufey Kjaran, Ólafur Örn Ólafsson og Andrés Vilhjálmsson. Afhending viðurkenninga fer fram 5. apríl næstkomandi klukkan 12:00 og býður Icelandic Lamb gestum upp á léttan hádegisverð í Súlnasal Hótel Sögu. Viðurkenningaafgefningin opin öllum en hún fer fram samhliða aðalfundar Landssambands Sauðfjárbænda.
Samstarfið við veitingastaði mikilvægur þáttur
Aðspurður segir Hafliði Halldórsson Framkvæmdastjóri Icelandic Lamb ánægður með áhuga matreiðslumanna á því að vinna með íslenskt lambakjöt og þá þróun sem orðið hefur á notkun hráefnisins.
„Það er mikil gróska í greininni og spennandi að sjá matreiðslumenn prófa sig áfram með innra læri, slög, frampart og aðra bita en hinn klassíska lambahrygg. Sú þróun er mikilvægt skref í átt að frekari verðmætasköpun á íslensku lambakjöti“.
Hann segir samstarfið við veitingastaði spila veigamikinn þátt í starfi markaðsstofunnar, en 70% erlendra ferðamanna sem þekkja merki Icelandic Lamb muna eftir því að hafa séð skjöld Icelandic Lamb á veitingastað á meðan á íslandsdvölinni stóð.
„Þess vegna viljum við halda áfram að veita viðurkenningar til þeirra staða sem skara fram úr. Það er mikilvægt að halda áfram að nýta samstarf við veitingastaði til þess að tryggja að skilaboð Icelandic lamb skili sér til erlendra ferðamanna.“
Í dag eru yfir 150 veitingastaðir í samstarfi við Icelandic Lamb og því ærið verkefni framundan hjá dómnefndinni. Stöðunum er gefin einkunn fyrir útlit og bragð lambakjötsréttanna og nýtingu staðarins á markaðsefni Icelandic Lamb, en samstarfsaðilum stendur til boða allt markaðsefni sem framleitt hefur verið undir formerkjum markaðsstofunnar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt6 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku




