Vertu memm

Keppni

Heimsmeistarakeppni matreiðslumanna heldur áfram í Lúxemborg – Í dag er seinni keppnisdagur Íslenska Kokkalandsliðsins

Birting:

þann

Íslenska kokkalandsliðið - Lúxemborg 2022

Íslenska kokkalandsliðið hóf seinni keppnisdaginn sinn núna í hádeginu í Lúxemborg en keppnin hefur staðið yfir síðan á föstudag. Eins og kom fram í fréttum á sunnudag vann liðið til gullverðlauna fyrir fyrstu keppnisgreinina sína sem var “Restaurant of Nations” sem saman stendur af þriggja rétta heitum matseðli sem var eldaður fyrir 110 manns.

Sjá einnig:  Íslenska Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna

Íslenska kokkalandsliðið - Lúxemborg 2022

Súkkulaðistytta þessi er „center peace“ sem þarf að hafa á þjónustuborði liðsins við framreiðslu rétti dagsins.
Listaverk eftir Chidapha Kruasaeng og Ívar Kjartansson

Í dag er keppt í svokölluðu Chef’s Table sem er þrettán rétta fine-dining máltíð fyrir 12 manns og lýkur keppninni í dag ekki fyrir undir 22:00 að staðartíma. Úrslitin verða í þessari grein svo kynnt á morgun.

“Þetta kallar á úthald hjá okkar fólki, það er ágætt að hafa tvo daga á milli því það má varla minna vera á milli keppnisgreina sem þessara.  Þessir dagar eru nýttir í stanslausan frágang, undirbúning og fíniseríngar.

Metnaður er mikill og kröfurnar sem liðið gerir til sjálfs síns eru mjög miklar.”

Segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem á og rekur Íslenska kokkalandsliðið. Þórir er á staðnum með liðinu ásamt nokkrum fulltrúum klúbbsins sem eru hópnum til aðstoðar.

Liðið ætlar að fylgja eftir framúrskarandi árangri liðsins frá síðustu Ólympíuleikum í Stuttgart þar sem þau fengu brons verðlaun fyrir samanlagðan árangur í byrjun árs 2020.

Sjá einnig:  Íslenska Kokkalandsliðið á verðlaunapall – „Við erum þriðja besta kokkalandslið Í HEIMI!!“

Keppnismatreiðsla er í rauninni frádráttarkeppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja allir með 100 stig sem lækkar síðan með tilliti til snyrtimennsku, fagmennsku, útlits rétta og bragðs.

Gull­frammistaða er 90 stig, silfur 80 stig og brons 70 stig.

Íslenska kokkalandsliðið - Lúxemborg 2022

Á mótinu í ár eru um 20 lönd sem taka þátt. Úrslit verða svo kynnt Lúxemborg á fimmtudaginn og liðið kemur svo heim á föstudag.

Íslenska Kokkalandsliðið skipa:

Þjálfari:
Ari Þór Gunnarsson Fastus

Fyrirliði:
Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar

 

Aron Gísla Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar

Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar

Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides

Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan

Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac

Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu

Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum

Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt

Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum

 

Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu

Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides

Marteinn Rastrick, Lux Veitingum

Íslenska kokkalandsliðið - Lúxemborg 2022

Íslenska kokkalandsliðið - Lúxemborg 2022

Myndir: Brynja Kr.Thorlacius

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið