Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Guðný og Ingvar opna Mæruna í Hveragerði
Guðný Ingibergsdóttir framreiðslumaður og Ingvar Már Helgason matreiðslumeistari hafa fest kaup á sjoppunni Mærunni í Hveragerði sem staðsett er við Breiðumörk 10 í sama húsnæði og Hverabakarí var áður til húsa.
Guðný hóf að læra fræðin sín á Perlunni árið 2002 og útskrifaðist sem framreiðslumaður árið 2005. Guðný hefur starfað sem vaktsjóri á Kolabrautinni, og í 5 ár í fundarþjónustu í Höfuðstöðvum Arion Banka, ásamt því að vinna í stórum veislum og árshátíðum með.
Námstaður Ingvars var Kristján X á Hellu 2001 – 2002 og Grand Hótel 2002 og útskrifaðist þaðan sem matreiðslumaður árið 2005 og sem matreiðslumeistari árið 2014. Ingvar hefur starfað á Grand Hótel, Hótel Sögu, ISS á Íslandi og starfar nú í mötuneyti ÁTVR ásamt því að vinna einnig í Mærunni.
Guðný og Ingvar búa núna í Hafnarfirðinum en eru að leita af húsnæði í Hveragerði, en þau opnuðu Mæruna 3. janúar s.l. og er opið frá klukkan 09:30-21:00 á virkum dögum og 11:00-21:00 um helgar, sem er vetraropnunartími og mun breytast í sumar. Í mars næstkomandi mun ísbúð bætast við í sama húsnæði og sjoppan sem kemur til með að heita Gottís, en í augnablikinu eru sæti fyrir 11 manns í salnum en þeim á eftir að fjölga þegar ísbúðin opnar í mars.
Á matseðli Mærunnar má sjá Tortilluvefjur með grænmeti, kjúkling með og án BBQ, ásamt Quesadilla og mexískósku kjúklingasalati svo fátt eitt sé nefnt ásamt öllu því sem fylgir sjoppu rekstri, nammi, gos, Lottó, ís frá Kjörís og fl.
Nú er stefnan tekin á að bæta við úrvalið hjá ykkur í mars n.k. og þið opnið ísbúðina Gottís og verðið þ.a.l. eina ísbúðin í Hveragerði, hafið þið fundið jákvæð viðbrögð við opnun ísbúðarinnar?
Já við höfum fundið fyrir jákvæðum viðbrögðum bæði hjá Hvergerðingum og Höfuðborgarbúum sem hlakka mikið til að koma í ísbíltúr í Hveragerði eins og margir gerðu á meðan Eden var uppá sitt besta. Svo hefur Hveragerði uppá svo margt að bjóða í sambandi við útivist og afþreyingu fyrir fjölskylduna.
, sagði Guðný.
Þar sem þið eruð nú í mekka íssins á Íslandi, komið þið til með að bjóða upp á Búbís? (brjóstamjólk ísinn frá Kjörís sem var í boði á Ísdeginum í Hveragerði í fyrra)
Ég á nú ekki von á því að Kjörís fari í fjöldaframleiðslu á Búbís vegna mikilla vinsælda brjóstamjólkur hjá yngstu Hvergerðingunum, það er einfaldlega ekki nóg framboð af hráefni. En ég á von á mörgum verðandi feðrum í heimsókn í ísbúðina til að svala ísþorsta verðandi mæðra.
Er langþráður draumur að rætast hjá ykkur?
Stundum er betra að stökkva en hrökkva
, sagði Guðný hress í samtali við veitingageirinn.is.
Facebook síða Mærunnar.
Myndir: aðsendar
![]()
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn5 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars







