Frétt
Graflax innkallaður vegna listeríu
Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á Úrvals graflaxi frá Eðalfiski ehf. vegna listeríu sem fannst í vörum með síðasta notkunardegi á tímabilinu 13.3.2022-11.4.2022. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í varúðarskyni af markaði og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Úrvals grafnar sneiðar, Úrvals grafinn lax (bitar), Úrvals grafinn lax (flök)
- Framleiðandi: Eðalfiskur ehf, Vallarási 7-9, 310 Borgarnesi
- Lotunúmer: IB22038041046, IB22038041049 og IB22038042048
- Siðasti notkunardagur: 13.3.2022-11.4.2022
- Dreifing: Verslanir Krónunnar, Fjarðarkaup og í Kolaportinu.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn, aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og nánari upplýsingar eru veittar af fyrirtækinu í síma 437-1680 og í tölvupóstfanginu [email protected].
Nánari upplýsingar um listeríu hér.
Myndir: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum





