Frétt
Gildandi sóttvarnaráðstafanir framlengdar um viku
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglugerða um takmarkanir á samkomum og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis. Í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum á næstu vikum.
Sjá einnig:
Tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. apríl 2021
Sóttvarnalæknir bendir á að á gildistíma reglugerðanna hafi komið upp nokkrar hópsýkingar á suðvesturhorni landsins sem rekja megi til ferðamanna á landamærum sem ekki fóru að reglum um sóttkví og einangrun. Í framhaldi af því hafi verið ráðist í ýmsar aðgerðir til að minnka enn frekar hættuna á því að smit berist inn í landið. Hann segir vel hafa gengið að ná utan um hópsýkingar síðustu vikna með öflugri smitrakningu en telur ráðlegt að fara varlega í afléttingar á takmörkunum innanlands svo ekki komi bakslag varðandi útbreiðslu sýkinga.
Ástæða til bjartsýni
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir allt benda til þess að afléttingaráætlun stjórnvalda muni ganga eftir og að hægt verði að slaka verulega á samkomutakmörkunum fyrir miðjan mánuðinn.
„Það er full ástæða til bjartsýni. Vel gengur að kveða niður þær hópsýkingar sem upp hafa komið að undanförnu og síðast en ekki síst er rífandi gangur í bólusetningum og bjart framundan í þeim efnum,“
segir ráðherra.
Mikill gangur í bólusetningum
Í lok síðustu viku voru um 110.200 einstaklingar búnir að fá a.m.k. einn bóluefnaskammt og tæplega 36.380 einstaklingar voru fullbólusettir. Í þessari viku verða um 40.000 einstaklingar bólusettir og er það langstærsta bólusetningarvikan til þessa.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn2 dagar síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Keppni5 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn6 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Markaðurinn3 dagar síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt vörumerki hjá Nathan: Arco
-
Markaðurinn1 dagur síðanÞessi vefja með grillosti er fullkomin fyrir léttan kvöldmat




