Markaðurinn
Gabríel Kristinn – Kokkur ársins 2025 – leiðir þig í gegnum fullkomna páskamáltíð
Þegar páskahátíðin nálgast, vaknar löngunin í eitthvað sérstakt – og þessi uppskrift frá Kjarnafæði hittir beint í mark. Hér sameinast djúp hefð íslensks lambakjöts og nútímaleg matargerð í dásamlegri veislu: foyot-sósa, stökkar kartöflur, sveppir og grænmeti leika saman í hljómþýðu samspili á páskadisknum.
Uppskrift
Gabríel Kristinn – Kokkur ársins 2025 – kynnir hátíðlega uppskrift að páskalambi frá Kjarnafæði, þar sem hefðbundin íslensk matargerð fær ferskan og nútímalegan blæ.
Heiðarlamb
- 1stk Lambalæri frá kjarnafæði
- 4 stk Greinar rósmarín
- 10 stk greinar Timian
- 5 msk borð edik
- 5 msk olía
- 2 stk Gulur laukur
Aðferð
- Byrjað er á að hita ofn í 220c.
- Laukurinn er skorinn hringi og lagt í steikingarfat og kryddað með salti.
- Lamb er lagt ofan á laukinn og síðan kryddað með olíu, edi, salt og pipar
- Sett inn í ofn á 220 c í 30 min, síðan er lækkað ofninn í 150c og leyft að dóla í 1 klst í viðbót.
- Mikilvægt er að leyfa hvíla í allavega 20 min áður en er skorið.
Foyot sósa
- 300g Brætt smjör
- 1 stk Egg
- 1 stk Eggjarauða
- 1stk Shallot laukur
- 5stk stilkar af estragon
- 200g Hvítvínsedik
- 10stk Piparkorn
- 2 stk Rósmarín greinar
- ½ Msk dijon sinnep
- 1 Msk Saxað estragon
- 1 msk Nautasoð kraftur í vökvaformi
- Salt og pipar
Aðferð
- Byrja á að búa til essens, þá seturu hvítvíns edik, saxaðan shallot, estragon stilkar,pipar og rósmarín, sjóða niður um helming og svo sigta.
- Smjörið er brætt og á meðan eru eggin pískuð yfir vatnsbaði með salti, dijon og edik essens þangað til eggin líta út eins og tilbúinn bernaise, passa þarf að ofnelda ekki.
- Smjörið er helt hægt yfir egginn og pískað vel á meðan og svo krydda með soð kraftinum og salt og pipar
- “Roasties” kartöflur
- 6 stk Kartöflur
- 500g Repjuolía
- 2 stk hveitlauksgeirar
- 2 msk saxaður graslaukur
- Salt
Aðferð
- Byrjað er að afhýða kartöflurnar og skera hverja kartöflu í 6 bita.
- Síðan soðið í saltvatni þangað til eldaðar í gegn, vatnið er sigtað frá og leyft kartöflunum að hvíla í 10 mín í pottinum. Svo eru kartöflurnar hristar þangað til að utanverð húðin verði hrúf.
- Best er að leyfa kartöflunum að þorna yfirnótt.
- Í ofnfast form er olíunni bætt við og sett inn í ofn á 190c, þegar olían er orðin heit þá eru kartöflunum bætt við og sett inn í ofn, passa að snúa kartöflunum á 10 min fresti þangað til crispy.
- Í lokin er saxaður hvítlaukur og graslaukur bætt við og klárað með salti
Sveppi og confit lauk salat
- 2 Pakkar shitake sveppir
- 1 Pakki enoki sveppir
- 2 msk smjör
- Allur laukurinn sem var eldaður með lambinu
Aðferð:
- Sveppir eru steiktir á pönnu með smjöri þangað til gullnin brúnir, síðan er laukinum bætt við og borið fram.
Steikt brokkolini og pak choi með feykir osti
- 1 Pakning brokkolini
- 1 Pakning pak choi
- 2 Msk hvítvíns edik
- Sítrónu zest af hálfri sítrónu
- Feykir ostur
Aðferð
- Pak Choi og brokkolini er steikt á pönnu í sitthvoru lagi þangað til eldað.
- Síðan í skál er ediki og sítrónu bætt við, síðan toppað með nóg af rifnum feykir osti
Vídeó
Í meðfylgjandi myndbandi sýnir Gabríel Kristinn hvernig á að elda páskalambið – á lifandi, skemmtilegan og aðgengilegan hátt.
Myndir: kjarnafaedi.is

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðan
Hlaðvarpið sem fagmenn í veitingageiranum elska – MatMenn bjóða upp á innsýn í bransann
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðan
Ný kynslóð kjötiðnaðarmanna – Myndasafn af nemendum að störfum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Aprílfundur KM: Veitingasvæði Ikea skoðað, mannúðarmál rædd og happdrætti til styrktar Myanmar bar góðan árangur – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fastus – ein heild á ný
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Yfirkokkur óskast á Fosshótel Húsavík – Executive chef Wanted at Fosshotel Húsavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Vorið kallar á nýsköpun og skapandi hugmyndir hjá Noma og MAD
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Fyrsta 3D-prentaða kaffihúsið rís í Texas
-
Frétt5 dagar síðan
Eggjaverð í Bandaríkjunum í hæstu hæðum – stangast á við fullyrðingar Donald Trumps