Frétt
Frumvarp um iðnaðarhamp orðið að lögum – iðnaðarhampur er ekki ávana- og fíkniefni heldur nytjaplanta

Algengt er að fólk hafi illan bifur á Iðnaðarhampinum vegna þess að henni er oft ruglað saman við hamp sem ræktaður í þeim tilgangi að framleiða vímuefni.
Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem felur í sér að stjórnsýsla og verkefni sem varða innflutning á hampfræjum til ræktunar á iðnaðarhampi flyst frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar. Við lagasetninguna var horft til þess að iðnaðarhampur er ekki ávana- og fíkniefni heldur nytjaplanta og því eðlilegra að fræ til ræktunar á honum falli undir lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru sem Matvælastofnun hefur eftirlit með.
Sjá einnig:
Ein planta sem uppfyllir allar þarfir mannkyns? Myndir og vídeó
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti á liðnu ári Lyfjastofnun undanþáguheimild með breytingu á reglugerð nr. 233/2001 sem gerði innflutning fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulegan. Heimildin var háð skilyrðum þannig að tryggt væri að ekki yrðu fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda vímuefnið THC í nýtanlegu magni, eða að hámarki 0,2%. Ráðherra lagði áherslu á að reglugerðarbreytingin væri tímabundin ráðstöfun. Ávana- og fíkniefnalöggjöfin hefði skýr markmið og tilgang sem félli augljóslega að málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins. Það gerði ræktun iðnaðarhamps hins vegar ekki. Því væri nauðsynlegt að skýra lagagrundvöll og ábyrgð þeirra stofnana sem þurfa að koma að framkvæmdinni þegar kemur að leyfisveitingum og eftirliti með ræktun iðnaðarhamps.
Á grundvelli nýsamþykktra laga er gert ráð fyrir að ráðherra landbúnaðarmála setji reglugerð sem kveði á um veitingu leyfis til innflutnings á fræjum af tegundinni Cannabis sativa og skuli þar m.a. koma fram nánari skilyrði og takmarkanir á innflutningi, meðferð og vörslu þeirra fræja sem lögin ná til.
Í áliti velferðarnefndar kemur fram að í allflestum umsögnum sem nefndinni bárust um frumvarp heilbrigðisráðherra hafi því verið fagnað: „Tekið var undir að málaflokkurinn ætti heima hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá var bent á að sökum undanþáguheimildar með breytingu á reglugerð nr. 233/2001, sem gerði innflutning, meðferð og vörslu fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulega, hefði ræktun hér á landi gengið vel.“
Mynd: úr safni / Matís
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn7 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina
-
Frétt12 klukkustundir síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki





