Frétt
Friðrik matreiðslumeistari bauð upp á vinsælar fisktegundir í París
Mikil aukning hefur verið á útflutningi sjávarafurða til Frakklands á liðnum árum. Frakkland er nú stærsti markaðurinn fyrir ferskan þorsk.
Þann 24. janúar sl. skipulagði Íslandsstofa kynningarfund fyrir hönd Ábyrgra fiskveiða í samstarfi við sendiráðið í París. Á fundinn var boðið dreifingaraðilum og kaupendum á sjávarafurðum og á dagskránni var kynning á fiskveiðistjórnun Íslendinga, fiskirannsóknir og vottun fiskveiða undir merkjum Iceland Responsible Fisheries. Einnig var rætt um markaðsmál og samstarf um kynningu á sjávarafurðum á franska markaðinum. Auk þess var fundað sérstaklega með tveimur umhverfisverndarsamtökum, WWF og Ethnic Ocean (áður Seaweb).
Kristján Freyr Helgason sérfræðingur sem er staðsettur í sendiráðinu í Brussel kynnti fiskveiðistjórnun, útskýrði aflareglur við stjórn fiskveiða, skipulag eftirlits o.fl. Þorsteinn Sigurðsson lýsti starfsemi sinnar stofnunar, Haf og vatn, á sviði fiskirannsókna og ráðgjafar. Finnur Garðarsson sagði frá vottunarmálum undir merkjum Iceland Responsible Fisheries, en þrjár tegundir eru nú í ferli í fullnaðarvottun: langa, keila og íslenska sumargotssíldin. Guðný Káradóttir hjá Íslandsstofu sagði frá markaðsmálum og tækifæri til samstarfs í kynningu á íslenskum sjávarafurðum. Hrefna Karlsdóttir frá SFS tók saman helstu þætti í kynningunum og kom líka inn á árangur í íslenskum sjávarútvegi s.s. á sviði umhverfismála, minnkuð eldsneytisnotkun í skipaflotanum.
Að loknum kynningum smökkuðu gestir á íslenskum kræsingum sem Friðrik Sigurðsson, matreiðslumeistari, hafði matbúið úr þorski, ufsa, löngu, steinbít og karfa, sem allt eru vinsælar tegundir í Frakklandi, og fundargestir gátu rætt nánar um málefni fundarins við framsögufólkið.
Myndir: responsiblefisheries.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn7 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn7 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann




