Vertu memm

Frétt

Framkvæmdir á Hlemmsvæðinu – Gert ráð fyrir að veitingastaðir geti vaxið út í göngurýmið

Birting:

þann

Framkvæmdir á Hlemmsvæðinu

Nú styttist í útboð og framkvæmdir á fyrsta áfanga á Hlemmi ásamt Rauðarárstíg frá Bríetartúni að Hverfisgötu. Reykjavíkurborg og Veitur munu kynna og upplýsa hagsmunaaðila og borgarbúa um næstu skref.

Hönnunartillögur Mandaworks í Svíþjóð og DLD- Dagný Land Design voru valdar árið 2017 og unnin var áframhaldandi hönnun á Hlemmi. Yrki arkitektar unnu deiliskipulag að svæðinu í samstarfi við Reykjavíkurborg og hönnuði svæðisins.

Breytingin nær til lóða og almenningsrýma sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Stækka á Hlemmtorg með því að breyta umferð um svæðið. Tilgangur breytinga er  að ná utan um framkvæmdasvæðið sem fylgdi breytingum á gatnamótum Borgartúns við Snorrabraut og framlengingu hjólastíga yfir Sæbraut, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Nýr og betri Hlemmur

Framkvæmdir á Hlemmsvæðinu

Hlemmsvæðið í dag

Hvað verður gert á þessu ári?

Útboð og framkvæmdir á Laugavegi og Rauðarárstíg norður

Það sem er á döfinni á árinu 2022 er kafli á Laugavegi – svokallaður snákur sem er myndar afmarkað svæði með gróðri, setsvæðum, hjólastæði og óformlegum leikrýmum. Fyrsti áfanginn, sem verður framkvæmdur í sumar, nær frá Snorrabraut að húshorninu til móts við Hlemm Mathöll.

Stálprófíll sem rís og hnígur er leiðandi þáttur á þessum kafla en í honum er einnig falin óbein lýsing á völdum svæðum og afmarkar hann þjónustuleiðir í göturýminu. Yfirborð snáksins er myndað með náttúrusteini, en leiðin þjónar einnig hlutverki blágrænna ofanvatnslausna. Sólarmegin á Laugarveginum er gert ráð fyrir að veitingastaðir geti vaxið út í göngurýmið.

Framkvæmdir á Hlemmsvæðinu

1. áfangi – Snákurinn næst Snorrabraut

Rauðarárstígur frá Grettisgötu að Hlemmi er sólrík gata og í tillögunni er gert ráð fyrir setsvæðum og leikmöguleikum í átt að torgsvæðinu. Lítil hestahjörð stefnir að torginu en það eru hreyfanlegir abstrakt hestar sem mynda m.a set- og leiksvæði. Veitinga- og þjónustuaðilar geta einnig vaxið út í göngurýmið.

Rauðarárstígur frá Bríetartúni

Á sama tíma og Hlemmur fær nýtt hlutverk gerði VSÓ ráðgjöf í samstarfi við Reykjavíkurborg yfirborðs og gatnahönnun fyrir Rauðarárstíg norður af Hlemmi. Svæðið er hannað sem vistgata, er í einum fleti og allt rýmið verður hellulagt.

  • Gatnamót við Bríetartún verða upphækkuð og akstursrými afmarkað með lágum kantsteini.
  • Rauðarárstígur verður lokaður til suðurs við Gasstöðina og með snúningshaus fyrir fólksbíla í botni götunnar.
  • Rafhleðslustæði verða nyrst í götunni en í götunni verða einnig biðsvæði fyrir leigubíla ásamt stæðum fyrir stutt stopp.
  • Meðfram húsaröð við Rauðarárstíg er aðkomusvæði íbúðarhúsanna þar sem útfæra má í samráði við húseigendur rampa að inngangi. Við jaðar bygginganna er gert ráð fyrir grænu gróðursvæði að hluta sem skapar mjúka ásýnd og sem getur skapað aðstæður til dvalar fyrir íbúa . Bekkir og klakkar afmarka svæðið næst húsunum.
  • Afvötnun af þaki húsa verður í gróðurbeð næst húsum.
  • Afvötnun hellusvæða er í rennustein og vatnsrásir með ristarloki. Regnbeð eru á torgsvæði næst Bríetartúni og meðfram göngusvæðum.
  • Götutré gróðursett í trjárist verða meðfram götunni og regnbeð með fjölbreyttum gróðri.
  • Lýsing í götunni er með 4-5 m háum miðborgarlömpum. Götugögn s.s. bekkir og hjólagrindur verða í samræmi við götugagnastefnu Reykjavíkurborgar.
  • Næst torgsvæðinu og Hlemmi er komið fyrir stæðum fyrir hreyfihamlaða.

Þessi áform og framkvæmdaáætlun verður nú kynnt vandlega fyrir hagsmunaaðilum og borgarbúum af Reykjavíkurborg og Veitum.

Myndir: reykjavik.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið