Freisting
Forstjóri Michelin fórst í sjóslysi
Rannsókn er hafin á láti Edouard Michelin, 43 ára gamals forstjóra hjólbarðaframleiðandans Michelin, en lík hans fannst á reki innan um humragildrur undan strönd Bretagneskaga í gærkvöldi. Michelin fór í róður ásamt Guillaume Normant, vini sínum í gær í góðu veðri. Svo virðist sem báturinn hafi sokkið en svæðið þarna þykir hættulegt. Leit stendur yfir að Normant.
Um 130 þúsund manns starfa hjá Michelin, sem framleiðir samnefnda hjólbarða og leggur einnig nafn sitt við heimsþekkta ferðahandbók þar sem veitingastöðum og hótelum eru gefnar stjörnur. Edouard Michelin, sem lætur eftir sig eiginkonu og sex börn, hóf störf í fyrirtækinu, sem faðir hans stofnaði, þegar hann var 22 ára og árið 1991 tók hann við stjórnartaumunum, 28 ára gamall. Honum tókst að koma rekstrinum á réttan kjöl.
Michelin framleiddi hjólbarða fyrir nokkur kappaksturslið í Formúlu 1 en hafði lýst því yfir að slíkri framleiðslu yrði hætt eftir þetta keppnistímabil. Alþjóða akstursíþróttasambandið sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem harmi er lýst vegna fráfalls Michelins en Monte Carlo kappaksturinn fer fram um helgina.
Greint frá í Morgunblaðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni4 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn5 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Frétt5 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn4 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði


