Food & fun
Food and Fun hátíðin haldin í fimmta sinn
Matar- og skemmtihátíðin „Food and Fun “ verður haldin á Íslandi í fimmta sinn dagana 22.-26. febrúar næstkomandi. Hátíðin er haldin í samstarfi Icelandair, Reykjavíkurborgar og fleiri aðila og er á sama tíma og vetrarhátíð sem borgin stendur fyrir. Borgarstjórahjón Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, þau Dianne og Anthony A. Williams, verða heiðursgestir hátíðarinnar.
Samstarfsaðili „Food and Fun“ hátíðarinnar er m.a. Iceland Naturally, sem er sameiginlegur kynningarvettvangur íslenskra stjórnvalda og fyrirtækja í Bandaríkjunum og vistað hjá skrifstofu Ferðamálastofu í Bandaríkjunum. Fyrirtækin innan þess samstarfs eru Icelandair, Icelandic® USA, íslenskur landbúnaður, Iceland Seafood, Iceland Spring Natural Water, Flugstöð Leifs Eirikssonar, 66 Norður og Bláa lónið. Með hátíðinni er stefnt að því að kynna gæði íslenskra matvæla og veitingamennsku á nýstárlegan hátt, svipað og íslensk tónlist hefur verið kynnt með Iceland Airwaves tónlistarhátíð Icelandair sem haldin er árlega. Undanfarin ár hefur „Food and Fun“ hátíðin vakið mikla athygli erlendis og er nú gert ráð fyrir tugum erlendra fréttamanna til að fylgjast með hátíðinni.
Heimskunnir matreiðslumeistarar á veitingahúsum borgarinnar
Veitingahús borgarinnar og matreiðslumeistarar þeirra verða í aðalhlutverki þessa daga. Heimskunnir matreiðslumeistarar frá Bandaríkjunum og Evrópu munu koma sér fyrir í eldhúsum nokkurra bestu veitingahúsa höfuðborgarinnar og elda með íslenskum starfsbræðrum sælkeramáltíðir fyrir gesti þá daga sem hátíðin stendur yfir. Veitingastaðirnir eru Apótek, Einar Ben, Hótel Holt, SALT, Grillið, La Primavera, Perlan, Sjávarkjallarinn, Siggi Hall á Óðinsvéum, Rauðará Steikhús, Skólabrú og Vox.
Alþjóðleg matreiðslukeppni í Hafnarhúsinu
Meðal atriði á hátíðinni er alþjóðleg matreiðslukeppni sem fram fer í Hafnarhúsinu á laugardaginn 25. febrúar og hefst kl. 13. Þar hafa meistarakokka hátíðarinnar þrjár klukkustundir til að útbúa ýmsa rétti sem síðan eru lagðir í mat dómnefndar. Almenningi er frjálst að koma og fylgjast með og hefur keppnin einmit dregið að sér fjölda fólks undanfarin ár. Hátíðinni lýkur með Gala kvöldverði á Nordica hótelinu laugardagskvöldið 25. febrúar.
Heimasíða Food and Fun
Heimild: Ferðamálastofa
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Keppni4 dagar síðan
Þessir veitingastaðir og Íslendingar eru tilnefndir til BCA 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu
-
Keppni4 dagar síðan
Ertu lærður matreiðslumaður eða matreiðslunemi og langar til að komast í ungkokkalandsliðið?
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Uppskrift – Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Reynir Grétarsson matreiðslumeistari með áhugavert fræðsluerindi um súkkulaðigerð – Myndir
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Uppskrift – Mozzarella fiskréttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Hótel og heilsulind Bláa Lónsins á meðal 10 bestu hótelum heims – Michelin