Freisting
Flutt verða inn 115 tonn af nautahakki
Landbúnaðarráðuneytið hefur í annað skipti á skömmum tíma auglýst eftir umsóknum til innflutnings á nautahakki. Hakkið verður flutt inn með lágum tollum. Sömuleiðis hefur ráðuneytið auglýst eftir umsóknum til innflutnings á 50 tonnum af kjúklingum með lágum tollum. Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir að tímabundinn skortur sé á þessum vörum á markaðinum og því hafi verið ákveðið að auka tollkvótana.
Mjólkuriðnaðurinn hefur verið að hvetja bændur til að auka mjólkurframleiðslu, en það virðist m.a. hafa þau áhrif að færri kýr koma til slátrunar, en kýrkjöt er uppistaðan í nautahakki. Ólafur segir að skortur hafi verið á nautahakki og landbúnaðarráðuneytið hafi brugðist við með því að heimila aukinn innflutning á nautahakki með lágum tollum. Í nóvember hafi verið heimilað að flytja inn 35 tonn og nú sé verið að auglýsa innflutning á 80 tonnum til viðbótar sem komi aðallega frá Danmörku. Nánast ekkert hefur verið flutt inn af nautahakki á síðustu árum. Ólafur segist ekki geta svarað því hvort heimilaður verði meiri innflutningur á þessari vöru. Það verði metið í vor.
Ólafur segir að verslunin hafi kvartað mikið yfir því að það skorti kjúklingabringur á markaðinn. Ráðuneytið hafi ákveðið að taka tillit til þessara óska og heimila innflutning á 50 tonnum af kjúklingum með lágum tollum. Á kjúklinginn verður lagður 140-160 kr/kg magntollur, en heimild er til að leggja á þessa vöru 30% verðtoll og 439 kr/kg magntoll.
Tollkvóti vegna nautalunda aldrei nýttur
Ísland er skuldbundið til að leyfa innflutning á ákveðnu magni af búvörum með lágum tollum. Ólafur segir misjafnt hvort þessar heimildir hafi verið nýttar. T.d. hafi kvóti fyrir innflutning á nautalundum, sem er 95 tonn, aldrei verið fullnýttur. Á þennan innflutning sé lagður 487 kr/kg magntollur. Hans segir því mjög villandi þegar því sé haldið fram að á þessa vöru sé lagður 30% verðtollur og 1.462 kr/kg magntollur, en Jón Ásgeir Jóhannesson nefndi þessar tölur í grein sem birtist í vikunni. Á þennan háa toll hafi ekki reynt fram að þessu.
Greint frá á Mbl.is
-
Keppni5 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Keppni2 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn5 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“



