Keppni
Ferðin í gær gekk vel, þrátt fyrir mikið hafurtask – Myndir
Ferðin í gær hjá Kokkalandsliðinu gekk vel, þrátt fyrir mikið hafurtask, en fyrir utan farangur liðsmanna voru 79 kassar af matvælum og búnaði. Lent var í Frankfurt og þaðan var keyrt í um 3 tíma til Erfurt þar sem Ólympíuleikarnir fara fram. Ekkert gefið eftir og strax farið að vinna við komuna á hótelið og fram undir miðnætti.
Tveir Íslenskir dómarar dæma á Ólympíuleikunum en það eru þeir Bjarni Gunnar Kristinsson og Jakob H. Magnússon matreiðslumeistarar.
Nú er liðið við vinnu í æfingaeldhúsinu sem sett var upp á hótelinu, við undirbúning á kalda borðinu, sem keppt verður í á sunnudag 23. október næstkomandi. Kokkalandsliðið keppir svo í heitum þriggja rétta kvöldverði á þriðjudaginn 25. október 2016.
Með fylgja myndir frá ferðalaginu í gær og af undirbúningnum í dag:
Um Ólympíuleikana
Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, er haldin á fjögurra ára fresti. Þar mætast um 2.000 af færustu kokkum heimsins sem keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Keppnin hófst í dag 21. október og stendur til 26. október. Lið frá um 40 þjóðum keppa á leikunum. Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Culinary Art Table eru sýndir yfir 30 réttir sem tekur rúmlega tvo sólarhringa að útbúa. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.
Núna snappar veitingageirinn frá Þýskalandi þar sem fylgst verður með Kokkalandsliðinu. Fylgist vel með á Snapchat og addið: veitingageirinn
Allar fréttir á einum stað
Hægt er að fylgjast vel með Kokkalandsliðinu á sérvef liðsins hér á veitingageirinn.is með því að smella hér.
Myndir: Stefanía Ingvarsdóttir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
-
Frétt2 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?













