Smári Valtýr Sæbjörnsson
Frestur til að skrá sig í Good France veisluna 19. mars er framlengdur til 20. desember nk.
Þann 19. mars 2015 sameinast þúsund matreiðslumeistarar í fimm heimsálfum um að að útbúa franska máltíð. Um er að ræða kvöldverð þar sem meistarar jafnt og matargestir kynnast því hve frönsk matarmenning stendur framarlega, hve fjölbreytt hún er og skapandi.
Utanríkis- og þróunarmálaráðuneyti Frakklands stendur á bak við viðburðinn ásamt Alain Ducasse matreiðslumeistara.
Þetta er einstakt tækifæri til að njóta bragðsins af Frakklandi og deila því með öðrum á hátíð sem teygir sig um víða veröld.
Í kvöldverðinum verða boðnir réttir þar sem frönsk matarmenning er í öndvegi en meistararnir eru frjálsir að því að laga matseðilinn að eigin matargerð og þeim úrvalsvörum og hráefnum sem þeir finna á næstu grösum.
ALMENN FORSKRIFT
Veitingahús, sem taka þátt í þessum viðburði, eru beðin að sleppa sköpunargleðinni lausri en fylgja samt eftirfarandi röð á réttum:
- Venjulegur fordrykkur:
-Kampavín og ostabollur (fylltar eða án fyllingar)
-Kælt koníak með lifrarkæfu - Kaldur forréttur
- Heitur forréttur
- Fisk- eða skelfiskréttur
- Kjöt- eða kjúklingaréttur
- Franskir ostar, einn eða fleiri
- Súkkulaðieftirréttur
- Úrval af frönskum vínum
- Franskur líkjör
Nota á sem minnst af fitu, sykri og salti í réttina, gæta vel að hollustu matarins og að hráefnanna sé aflað í fullri sátt við umhverfið.
Veitingahúsin verðleggja matinn að geðþótta en allir, sem taka þátt í hátíðinni, skuldbinda sig til að gefa 5% af tekjunum til einhverra samtaka í nærsveitinni sem vinna að heilbrigðis- og umhverfismálum.
HVERNIG Á AÐ TAKA ÞÁTT?
Þátttakendur skrá sig á slóðinni www.goodfrance.com.
Skráning getur verið í tveimur skrefum: fyrst eru sögð deili á veitingahúsinu og síðan gerð tillaga að matseðli.
Síðasti dagur til að skrá sig er 20. desember 2014.
Það verður nefnd matreiðslumeistara víða að úr heiminum, undir forsæti Alains Ducasses, sem samþykkir umsóknirnar.
15. janúar 2015 verður svo tilkynnt hvaða veitingahús verða með.
TIL HVERS AÐ TAKA ÞÁTT?
Goût de France / Good France er einstakt tækifæri til að eiga þátt í veislu sem stendur um allan heim.
Þátttakendur njóta líka góðs af kynningum sem fulltrúar Goût de France / Good France skipuleggja í öllum fjölmiðlum um víða veröld, ásamt sendiráðum Frakka erlendis, heimskunnum fyrirtækjum og stórum fjölmiðlum.
Frekari upplýsingar veitir:
Elodie Guenzi (Sendiráði Frakka á Íslandi)
[email protected]
eða
Pálmi Jóhannesson
Upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu
[email protected]
![]()
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt2 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax
-
Frétt1 dagur síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum



