Uppskriftir
Dúnmjúkar Bao bollur með hægelduðum rifnum grís, sesamsalati og japönsku majó
Ég elska Bao bollur! Þær eru svo mjúkar og fluffy og alveg fullkomnar með hægelduðu rifnu grísakjöti.
Maður þarf ekki alltaf að kaupa heila grísahnakka þegar það á að gera pulled pork, heldur er hægt að komast upp með að nota grísahnakka í sneiðum eins og gert er hér. Þá er eldunartíminn töluvert styttri sem gerir það að verkum að það er ekkert mál að gæða sér á þessari uppskrift í miðri viku ef maður vill!
Fyrir 2:
Grísahnakki í sneiðum, 400 g
Bao brauð, 6 stk / Fást frosin t.d. hjá Fiska á Nýbýlavegi
Rauðkál, 150 gr
Kóríander, 5 gr
Agúrka, 100 gr
Ristuð sesamfræ, 1 msk
Radísur, 2 stk
Japanskt majó, 60 ml
Kewpie Sesamdresssing, 45 ml / Fæst í Melabúðinni
Gochujang, 1 msk
Sojasósa, 1 msk
Engifermauk eða rifinn ferskur engifer, 1 tsk
Hvítlaukur, 1 rif
Kjúklingakraftur, 1 tsk
Hrísgrjónaedik, 1 tsk
Aðferð:
- Stillið ofn á 150°C með yfir og undir hita.
- Hrærið gochujang saman við sojasósu, engifermauk, 1 pressað hvítlauksrif, kjúklingakraft og hrísgrjónaedik.
- Nuddið gochujang blöndunni vel á kjötið, leggið kjötið svo í lítið eldfast mót og hellið botnfylli af vatni (ekki of mikið) í mótið. Bætið restinni af gochujang blöndunni (ef það var afgangur) út í vatnið og hyljið mótið því næst með álpappír.
- Bakið kjötið í miðjum ofni í 2-2,5 klst eða þar til kjötið losnar auðveldlega í sundur þegar togað er í það með tveimur göfflum. Gott er að kíkja á kjötið þegar tíminn er hálfnaður og bæta við ögn af vatni ef þarf.
- Notið tvo gaffla til þess að tæta kjötið niður í eldfasta mótinu og látið liggja í nokkrar mín í krydduðum vökvanum. Smakkið til með salti ef þarf.
- Hitið bao bollurnar eftir leiðbeiningum á umbúðum eða hitið í um 30 sek í örbylgjuofni þar til þær eru heitar og mjúkar.
- Sneiðið rauðkál eins þunnt og mögulegt er, helst með mandolíni (farið varlega!). Saxið kóríander. Setjið rauðkál, kóríander og sesamdressingu saman í skál og blandið vel saman.
- Sneiðið agúrku og radísur í þunnar sneiðar. Raðið sesamsalati, kjöti, japönsku majó og sesamfræjum í brauðin.
Uppskrift og mynd: Matur og Myndir | Snorri Guðmundsson,
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn1 dagur síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu



