Frétt
COVID-19: Núverandi takmarkanir innanlands framlengdar til 20. október

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19.
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þess efnis hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og gildir hún til og með 20. október næstkomandi.
Sjá einnig:
Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá og með deginum í dag 15. september
Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er þróun faraldursins rakin frá því að öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum hér á landi var aflétt 26. júní síðastliðinn og slakað á sýnatökum hjá farþegum á landamærunum. Sóttvarnalæknir bendir á að þessar tilslakanir hafi verið gerðar í ljósi þess að smit innanlands voru fátíð og um 70% þjóðarinnar fullbólusett. Tveimur til þremur vikum eftir afléttingu sóttvarnaaðgerða hafi smitum innanlands tekið að fjölga, fjölgun hafi orðið á innlögnum á Landspítala og alvarleg veikindi aukist. Í þessari bylgju hafi smit og alvarleg veikindi verið algengari en áður hjá óbólusettum börnum og tvö alvarlega veik börn lagst inn á sjúkrahús.
Eins og sóttvarnalæknir rekur voru aðgerðir innanlands og á landamærum hertar í kjölfar fjölgunar smita og í kjölfarið fækkað þeim og eru nú um 20-60 á dag, breytilegt eftir daglegum fjölda tekinna sýna. Hann vísar til margvíslegra tilslakana hjá öðrum þjóðum þar sem breytilegt er hvort þær hafi leitt til aukinnar útbreiðslu. Þá spái sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) og alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) aukinni útbreiðslu í byrjun vetrar og hafi hvatt þjóðir til að viðhafa áfram nauðsynlegar sóttvarnir, þar á meðal fjöldatakmarkanir, nándarreglu og notkunar andlitsgrímu við skilgreinda viðburði. „Í ljósi þróunar faraldursins erlendis og reynslunnar hérlendis af fullri afléttingu takmarkana þá tel ég varhugavert að slaka meira á þeim sóttvarnaaðgerðum innanlands en þeim sem nú eru í gildi“ segir í minnisblaði sóttvarnalæknis.
Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis leggur hann til að óbreyttar takmarkanir innanlands verði framlengdar í a.m.k. einn mánuð. Ráðherra fellst á framlengingu en telur rétt að sú ákvörðun verði endurskoðuð eftir hálfan mánuð.
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni7 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Bocuse d´Or9 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille





