Keppni
Uppfært: Brauðtertukeppni fagmanna frestað
Brauðtertukeppni Hellmann’s – Ertu meistari í brauðtertugerð?
Í samstarfi við Hellmann’s á Íslandi heldur Ekran brauðtertukeppni fyrir fagfólk í veitingageiranum þar sem matreiðslumenn, bakarar eða aðrir sem starfa í atvinnueldhúsum fá tækifæri til að láta ljós sitt skína og sýna listir sínar í brauðtertugerð.
Athugið: Brauðtertukeppni fagmanna frestað
Eina skilyrðið er að nota Hellmann’s Professional, Hellmann’s Real eða Hellmann’s vegan majónes í brauðtertuna, og nálgast keppendur Hellmann’s vöru að eigin vali ásamt fleiri hráefnum hjá Ekrunni þeim að kostnaðarlausu*. Annars hafa keppendur frjálsar hendur, eru hvattir til að láta sköpunargleðina ráða för og sýna hvað í þeim býr – því meira skapandi, því betra!
Keppnin er haldin miðvikudaginn 23. apríl kl 15:00 í húsakynnum Ekrunnar, Klettagörðum 19.
Veitt eru verðlaun fyrir hina fullkomnu brauðtertu, frumlegustu brauðtertuna og fallegustu brauðtertuna. Meðal vinninga eru 100.000 kr vöruúttekt hjá Ekrunni, gjafabréf frá Apótek group, gjafakassi frá Kjötkompaníinu, prótínvörupakki í boði QNT, ilmur í boði Jean Paul Gaultier og fleiri.
Í dómnefnd verða Gabríel Kristinn Bjarnason, kokkur ársins 2025 og höfundur bókarnnar ,,Þetta verður veisla“, Marentza Poulsen, smurbrauðsdrottning Íslands og rekstrarkona Klambra bistró, og Erla Hlynsdóttir, formaður Brauðtertufélags Erlu og Erlu, einn höfunda Stóru brauðtertubókarinnar og blaðakona.
Skráning er hafin og stendur til 17. apríl. Ítarlegri upplýsingar um skipulag og afhendingu hráefna berast þegar nær dregur. Nánari upplýsingar veitir markaðstjóri Ekrunnar, Elísabet Erlendsdóttir ([email protected]), eða þinn sölufulltrúi hjá Ekrunni.
*Hráefni upp að 10.000 kr. pr. keppanda. Ef keppandi mætir ekki með brauðtertuna verður kostnaðurinn reikningsfærður á viðkomandi keppanda.
Skráning fer fram hér og stendur til 17. apríl.
-
Markaðurinn5 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn6 dagar síðanOktóbertilboð hjá Danól – kjötbollur og fjölbreytt meðlæti
-
Frétt2 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




