Freisting
Bakarameistarar mótmæla verðhækkun á raforku
Á aðalfundi Landssambands bakarameistara var samþykktályktun þar sem mótmælt er harðlega þeirri miklu hækkun sem orðið hafi á verði á raforku til bakaría frá því ný orkulög tóku gildi í byrjun síðasta árs.
Í ályktuninni segir, að stærstur hluti raforkunotkunar í bakaríum fari fram á þeim tíma sólarhrings þegar almenn orkunotkun sé í lágmarki. Bakarí hafi hingað til notið betri kjara af þeim sökum gegn því að hægt væri að rjúfa rafmagn til þeirra á öðrum tímum sólarhringsins.
Við breytingar á orkulögum var þeim samningum rift með einu pennastriki og við það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að 50%. Þessar hækkanir hafa smám saman verið að koma í ljós frá því nýju orkulögin tóku gildi og enda óhjákvæmilega í hærra vöruverði. Bakarameistarar telja þessa hækkun ekki vera í samræmi við vilja stjórnvalda til að lækka verð á matvælum og hvetja orkusala til að koma til móts við óskir bakara um að leita leiða til að lækka orkuverð,“ segir í ályktuninni.
Greint frá á mbl.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins



