Viðtöl, örfréttir & frumraun
Arnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
- Arnór Ingi Bjarkason
- Lina Marija Balčiūnaitė
Íslenski kokkurinn Arnór Ingi Bjarkason hefur á skömmum tíma vakið athygli í Vilníus í Litháen þar sem hann, ásamt eiginkonu sinni Linu Mariju Balčiūnaitė, rekur veitingastaðinn Skóg við Pylimo-götu.
Aðeins sjö mánuðum eftir opnun hefur staðurinn þegar hlotið 90 stig í Falstaff Restaurant & Bistro Guide Nordics 2026, sem telst afar sterk viðurkenning á svo stuttum tíma.
„Að fá þessa viðurkenningu svona fljótt er eiginlega súrrealískt. Þetta gefur okkur nýja orku og hvatningu til að halda áfram og gera enn betur,“
segir Arnór í samtali við veitingageirinn.is.
Skóg opnaði í ágúst 2025 og viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum.
„Þær hafa bara verið mjög góðar, eiginlega betri en við vorum að búast við,“
segir hann.
Hugmyndafræði staðarins er ekki einföld í orðum, en Arnór lýsir henni sem norrænni matargerð byggðri á litháísku hráefni með áhrifum frá Austur-Asíu.
Reksturinn er í höndum hjónanna tveggja sem skipta verkum skýrt á milli sín. Arnór stýrir eldhúsinu og hannar matseðilinn ásamt vínpörunum, á meðan Lina sér um salinn og rekstrarhliðina.
„Við höfum unnið saman síðustu tvö ár og allt gengur mjög vel. Við erum með sömu framtíðarsýn og það skiptir miklu máli,“
segir hann.
Lina vakti athygli á síðasta ári þegar hún hlaut Michelin Service-verðlaunin 2025. Að sögn Arnórs kom sú viðurkenning henni á óvart.
„Hún var alltaf að efast um sjálfa sig, en þetta staðfesti bara að hún hefur verið að standa sig mjög vel.“

Veitingahjónin Arnór Ingi Bjarkason og Lina Marija Balčiūnaitė taka við Michelin-viðurkenningu á sínum tíma á Red Brick.
Áður en Skóg varð að veruleika rak Arnór veitingastaðinn Red Brick þar sem hann hlaut grænu Michelin-stjörnuna, fyrstur kokka í Litháen. Sú reynsla hefur þó ekki breytt hans nálgun að ráði.
„Ég hef alltaf viljað nota hráefni úr nærumhverfinu og við fylgjum enn sömu hugmyndafræði. Allt hráefni kemur frá Litháen nema sjávarafurðir sem við fáum frá Norðurlöndunum,“
segir hann og bætir við að áhersla sé lögð á lífrænt hráefni og svokölluð „low intervention“ vín.
Spurður um Michelin-stjörnu segir Arnór að hún sé vissulega markmið, en ekki á kostnað hugmyndafræðinnar.
„Ég er ekki að breyta minni matreiðslu til að ná stjörnu. Minn fókus er einfaldlega að gera betur á morgun en í dag. Ef það tekst, þá er ég sáttur.“
Þrátt fyrir metnaðarfullan smakkseðil leggur Skóg einnig áherslu á að vera aðgengilegur breiðari hópi. Mánaðarleg pizza pop-up kvöld hafa notið mikilla vinsælda.
„Við vildum gera eitthvað skemmtilegt og opna dyrnar fyrir þeim sem hafa kannski ekki efni á að koma annars. Seinast seldum við 180 pizzur á einum degi,“
segir Arnór.
Slík verkefni gefa kokkinum einnig tækifæri til að brjóta upp daglegt starf.
„Þetta snýst bara um að hafa gaman. Þetta eru ekki klassískar pizzur, heldur frelsi til að prófa sig áfram.“
Skóg hefur einnig vakið athygli fyrir að vera gæludýravænn staður, þar sem vel upp alin dýr eru velkomin.
„Fólk verður oft hissa þegar það sér hundinn okkar rölta um, en þá segir það oft að það komi næst með sinn eigin hund,“
segir hann.
- Í október á síðasta ári keppti Arnór í „Wine + Dessert“ í Litháen og hafnaði í fjórða sæti með eftirréttinn Apple & Pumpkin.
- Apple & Pumpkin, keppniseftirréttur Arnórs með eplasorbet og graskersfræjum
Ferill Arnórs í Litháen hefur gengið framar vonum.
„Mér hefur verið ótrúlega vel tekið hér. Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu vinalegt fólk er, þó að það sé stundum áskorun að nálgast ákveðið hráefni.“
Framtíðin er opin, en hugmyndirnar eru margar. Arnór hefur meðal annars horft til þess að rækta eigið hráefni.
„Það væri gaman að finna land og rækta okkar eigið grænmeti. Núna erum við að prófa okkur áfram í garðinum hjá foreldrum konunnar.“

Rúgbrauðið, sem flestir Íslendingar þekkja, er meðal þess sem Arnór hefur boðið gestum á Skóg í Vilníus.
Að lokum segir hann að lykillinn að áframhaldandi árangri sé stöðug framþróun.
„Ef við höldum áfram að bæta okkur jafnt og þétt, þá ætti allt hitt að fylgja.“
Heimasíða Skóg: skog.lt
Myndir: úr einkasafni
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Keppni5 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana

















