Uncategorized
Appiano Pinot Bianco 2004 fær 4 glös í Gestgjafanum
Í herbúðum Víns og matar punktur is ríkir mikil ánægja með nýjustu umfjöllun Þorra Hringssonar, þar sem hann tekur fyrir vín frá þeim sem ber heitið „Pinot Bianco“ frá San Michele Appiano og gefur því fjögur glös.
Hér að neðan er svo pistill sem birtist inn á Vinogmatur.is
Hvítvínin frá Appiano er tær og stílhrein. Þau minna mig á dólómíta, ferskar fjallalindir og dökkgræna dali þar sem heyra má í stöku kúabjöllu. Í Alto Adige eru vínekrur einhverjar þær dýrustu á Ítalíu enda skortur á landi til ræktunar þar sem Alparnir taka svo mikið pláss. Innan um eplaekrur og mjólkurkýr rækta þeir einhver mest spennandi vín landsins.
Í nýjasta Gestgjafanum fjallar Þorri um hvítvínið Pinot Bianco frá San Michele Appiano og gefur því fjögur glös. Reyndar er þýska áletrunin, St. Michael Eppan Weissburgunder – Sud Tyrol, eiginlega meira áberandi á miðanum. Alto Adige búar (Sud Tyrol á þýsku) eru nefnilega jafnvígir á þýsku og ítölsku og þegar maður keyrir þar um sveitir eru öll umferðarskilti t.d. á báðum tungumálunum.
Þorri fer málamiðlunarleið og kallar framleiðandann skv. þýskunni en þrúguna skv. ítölskunni.
ST. MICHAEL-EPPAN PINOT BIANCO 2004 (Ítalía) 4 glös
Hvítvínin frá Alto Adige eru heillandi. Að jafnaði eru þau einhver tærustu og ómenguðustu vín sem finna má á Ítalíu, ávaxtarík og blátt áfram. Þetta vín er úr þrúgunni pinot bianco sem kallast pinot blanc á frönsku og weissburgunder á þýsku og þar sem Alto Adige er undir miklum þýskum áhrifum er hið þýska heiti einnig nefnt á flöskumiðanum.
Vínið er strágult að lit með grænum tónum og meðalopinn ilm af þrúgum, peru, kamillu og sítrusávöxtum. Í munni er það nokkuð bragðmikið með fína sýru og meðallengd. Það er vel byggt og matarvænt vín með glefsur af peru, rauðu greipaldini, þrúgum, appelsínu og jafnvel lakkrís. Hafið það með betri fiskréttum, skelfiski, ljósu fuglakjöti og eggjabökum.
Gott eitt og sér.
Í reynslusölu vínbúðanna 1790 kr. Góð kaup.
Hiti: 7-9°C. Geymsla: Ekki geyma.
– Gestgjafinn 7 tbl. 2006, Þorri Hringsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni4 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn4 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Frétt4 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn3 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Frétt6 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði


