Markaðurinn
Aðalsteinn sigraði kokteilkeppnina Elit art of Martini
Elit art of Martini keppnin var haldin með pompi og prakt á Bazaar Oddsyni á þriðjudaginn síðastliðinn.
Öttu þar 6 barþjónar kappi og börðust um hylli dómnefndar sem að lokum úrskurðaði Aðalstein Bjarna Sigurðsson frá Pablo Discobar sigurvegara keppninnar.
Kokteill Aðalsteins bar nafnið „The Annoying Orange“ og er uppskriftin eftirfarandi:
40 ml elit vodka
15 ml Aperitivo Select
15 ml Lemon Juice
30 ml Orange Juice
10 ml Sugar Syrup
Að launum verður Aðalsteini flogið til Ibiza þar sem sigurvegarar Elit art of Martini keppni allra landa koma saman og upplifa það heitasta sem er að gerast í kokteil- og klúbbamenningu heimsins í dag.
Barþjónarnir sem kepptu voru:
- Aðalsteinn Bjarni Sigurðsson frá Pablo Discobar
- Arnar Geir Bjarkason frá Public House – Gastropub
- Lekë Lekaj frá Bazaar
- Orri Páll Vilhjálmsson frá Apotek Restaurant
- Sævar Helgi Örnólfsson frá Sushisamba
- Teitur Ridderman Schiöth frá Slippbarinn
Við hjá Karli K. Karlssyni sem stóðum að keppninni þökkum öllum þeim frábæru barþjónum sem tóku þátt og vonumst til að sjá þá aftur að ári.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau






