Freisting
Aðalfundur og afmælishátíð
Laugardaginn 14. apríl næstkomandi verður fyrsti aðalfundur MATVÍS haldinn. Í tengslum við fundinn verður haldin afmælishátíð vegna stórafmæla þriggja af þeim félögum sem að sameinuðust í MATVÍS .
Félag framreiðslumanna og Félag matreiðslumanna hefðu orðið 80 ára á árinu og Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna hefði orðið 60 ára.
Þá má þess geta að á næsta ári hefði Bakarasveinafélag Íslands orðið 100 ára og munum við að sjálfsögðu minnast þess á veglegan máta.
Aðalfundurinn verður haldinn á Hótel Nordica þann 14 apríl kl. 13.00 og eftir fundinn, eða kl. 18,00 bíður MATVÍS félögum sínum með mökum í móttöku í tilefni afmæla félaganna þriggja sem að stóðu að stofnun MATVÍS . Þar verður ýmislegt til skemmtunar eins og til dæmis Björgvin Frans Gíslason, tónlistarflutningur og fleira.
Niðurgreiðsla.
MATVÍS mun greiða niður ferðir, flugfar eða akstursgjald fyrir þá félaga sem að búa utan 50 kílómetra radíus á landsbyggðinni og sækja fundinn. Einnig mun MATVÍS styrkja þá félaga sem mæta á fundinn, utan að landi, vegna hóteldvalar með kr. 8000.
Félagar sem að ætla að nýta sér þetta boð MATVÍS, eru hvattir til að tryggja sér gistingu sem fyrst þar sem að búast má við að erfitt gæti reynst að fá hótelgistingu á þessum tíma.
-
MATVÍS hefur þegar tryggt nokkur herbergi á hótel Nordica og er hægt að bóka gistinguna þar með rafpósti [email protected] og gefa upp bókunarnúmerið MATVÍS 253459 eða hringja í síma 444-4000. Þar er tveggja manna herbergi á kr. 9.800 og eins manns á kr. 8.800, án morgunverðar.
-
Við höfum einnig tekið frá herbergi á Grand Hótel og þar er hægt að bóka gistingu hjá [email protected]. Verðið er kr 11.900 í tveggja manna herbergi með morgunverði.
-
MATVÍS hefur verið með afsláttarkjör til margra ára á Hótel Vík Síðumúla 19 og þar er verð til okkar félaga 6.700 í tveggja manna herbergi, með morgunmat og í eins manns herbergi 6.000 með morgunmat. Þar má panta í síma 588-5588.
Greint frá á vef Matvis.is
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanSkylduhráefni Bocuse d’Or liggur fyrir – Íslenska liðið þegar í fullum undirbúningi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSushi staðurinn Majó flytur starfsemi sína í Hof á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMeistarakokkar færa sælkeramat í hillur Krónunnar
-
Pistlar3 dagar síðanEinfaldlega íslenskt um jólin
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanVeitingarekstur á KEF varð ósjálfbær – Reksturinn skilaði milljarðatapi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanKristján Örn matreiðslumeistari bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á Gran Canaria – Myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí í undirbúningi á Öskjureitnum á Húsavík
-
Keppni5 dagar síðanCoffee & Cocktails hreppti 1. sætið í Old Fashioned keppninni





