Viðtöl, örfréttir & frumraun
Áætla um 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn að störfum í hátíðarkvöldverði KM
Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara (KM) verður haldinn í Hörpu laugardaginn 11. janúar 2025 næstkomandi. Er þetta einn stærsti og glæsilegasti viðburður ársins og verður klárlega eftirminnilegt kvöld líkt og hefur verið til fjölda ára.
Sjá einnig: Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara 2024
Þessi viðburður hefur verið haldinn árlega síðan 1988, fyrir utan tvö ár sem allir þekkja, það er Covid tímabilið.
KM áætlar að þegar hæst stendur verða yfir 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn á svæðinu, þannig að allir ættu að hitta einhvern sem þeir þekkja.
Hátíðarkvöldverðurinn er aðalfjáröflun Klúbbs matreiðslumeistara þar sem bestu matreiðslumenn landsins taka höndum saman og framreiða margrétta hátíðarmatseðil ásamt sérvöldum eðalvínum.
Allur ágóði kvöldsins rennur til starfsemi Klúbbs matreiðslumeistara, þannig verður klúbbnum kleift að efla matargerðarlist og styðja framgöngu klúbbfélaga bæði hér heima og erlendis með rekstri Kokkalandsliðsins og keppninnar um Kokk ársins. Næsta stóra mót Kokkalandsliðsins er heimsmeistaramót sem haldið verður í Lúxemborg 2026.
Miðaverð er 75.000 kr. og rennur allur ágóði kvöldsins til Kokkalandsliðsins.
Yfirmatreiðslumaður kvöldsins er Arnar Darri Bjarnason.
Myndir frá Hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara 2024 – Ljósmyndari: Mummi Lú
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn6 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn5 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Markaðurinn5 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanYfir 166 þúsund krónur á mann fyrir veitingar á heimaleik Fulham
-
Frétt4 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt









