Vertu memm

Markaðurinn

Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar

Birting:

þann

Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum - Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar

Innihald:

3 egg, aðskilin

50 g sykur

100 g hvítt súkkulaði

300 g rjómi frá Gott í matinn

150 g muldar piparkökur

Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum - Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar

Aðferð:

  1. Aðskilið eggin, setjið rauðurnar í skál ásamt sykri. Setið hvíturnar í aðra.
  2. Bræðið hvíta súkkulaðið í vatnsbaði. Takið af hitanum um leið og það er bráðið og látið mesta hitann rjúka úr. Hvítt súkkulaði bráðnar við vægan hita svo varist að hafa of heitt undir.
  3. Þeytið eggin og rauðurnar mjög vel eða þar til mjög létt og ljóst.
  4. Stífþeytið þá rjómann í einni skál og þeytið hvíturnar í annarri þar til þær eru orðnar alveg stífar og hægt að hvolfa skálinni án þess að þær leki úr.
  5. Blandið hvíta súkkulaðinu við rauðurnar með sleikju. Blandið þá rjómanum saman við með sleikjunni.
  6. Blandið því næst þeyttu eggjahvítunum varlega saman við.
  7. Myljið piparkökurnar, ég setti þær í rennilásapoka og rúllaði yfir með kökukefli. Gott að hafa stærri bita með.
  8. Blandið piparkökunum saman við að síðustu með sleikjunni. Setjið ísinn í litlar skálar eða eitt stórt form og frystið í að minnsta kosti 12 tíma.

Nánar á www.gottimatinn.is

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið