Frétt
Mikil uppbygging áformuð í Ölfusi
Framboð á gistingu í Þorlákshöfn og nágrenni mun margfaldast á næstu árum ef áform fjárfesta ná fram að ganga. Þau eru hluti af mikilli uppbyggingu sem er áformuð í Ölfusi á næstum árum en fjallað var um áformin í Morgunblaðinu í fyrradag.
Eitt þessara verkefna hefur vinnuheitið Hótel Black Beach og felur í sér uppbyggingu á hóteli austan við golfvöllinn við Þorlákshöfn.
Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna, segir verkefnið á frumstigi.
Spurður um tímaáætlun þessa verkefnis segir Sveinn að hún liggi ekki endanlega fyrir. Gera megi ráð fyrir að það taki ár að ljúka hönnuninni og að síðan muni framkvæmdir taka um tvö ár en samkvæmt því gætu verklok orðið í fyrsta lagi árið 2027.
Allt að 140 herbergja hótel
Félagið Thule Properties undirbýr byggingu hótels í Þorlákshöfn.
Gísli Steinar Gíslason forsvarsmaður félagsins segir verkefnið á undirbúningsstigi. Undirbúningur þess hafi hafist fyrir um átta mánuðum.
„Við erum í fýsileikakönnun og erum að leita tilboða til að áætla byggingarkostnað. Við erum meðal annars að meta hvaða byggingaraðferðir og hvaða stærð af hóteli hentar best á þessum stað. Við höfum heimild til að byggja upp undir 140 herbergja hótel en eigum eftir að meta í hversu mörgum áföngum hótelið verður byggt.
Þá sérstaklega í ljósi þess höggs sem ferðaþjónustan hefur orðið fyrir í ár. Það þarf að tímasetja upphaf framkvæmda vel,“
segir Gísli Steinar í samtali við Morgunblaðið hér.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu.
Mynd úr safni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn5 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn5 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Markaðurinn4 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanYfir 166 þúsund krónur á mann fyrir veitingar á heimaleik Fulham
-
Frétt3 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt



