Markaðurinn
John Lindsay hf. kaupir Kryddhúsið
John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið. Lindsay sérhæfir sig í innflutningi, heildsölu og framleiðslu á mat- og dagvöru til heimila og mötuneyta. Kryddhúsið var stofnað árið 2015 af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham, og framleiðir í dag yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum sem fást í matvöruverslunum um land allt.
Stefán S. Guðjónsson, eigandi og framkvæmdastjóri Lindsay, segir að framleiðsla og vörulager muni færast í Klettagarða 23.
„Við teljum að sameinað félag muni skapa ný tækifæri og opna nýja markaði fyrir þessar frábæru vörur. Við erum stöðugt að auka vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini okkar og eru kaupin liður í því,“
segir Stefán.
Kryddhúsið verður sameinað matvælaframleiðandanum Agnari Ludvigssyni ehf., sem er dótturfélag Lindsay, og framleiðir Royal lyftiduft, Royal búðinga og Bezt á kryddin.
Arta lögmenn sáu um ráðgjöf við kaupin og KPMG annaðist áreiðanleikakönnun fyrir hönd Lindsay.
“Við göngum á vit nýrra ævintýra eftir lærdómsrík ár í Kryddhúsinu. Eftir stendur frábært vörumerki sem á eftir að dafna enn frekar hjá nýjum rekstraraðilum enda einvala starfslið í hverri stöðu þar. Það verður gaman að fylgjast með á hliðarlínunni í framtíðinni”
segja Ólöf og Omry.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun14 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni15 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir






