Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Hátæknilegur pílustaður og veitingastaður fyrir 300 manns opnar í Kringlunni í sumar
Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche kemur til með að taka yfir pláss hins gamla Stjörnutorgs Kringlunnar frá og með sumarbyrjun.
Ísland verður þar með níunda landið sem getur státað sig af því að bjóða landsmönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúffengra veitinga, ásamt því að skemmta sér í hátækni pílu, keppa á þar til gerðum shuffleborðum, nú og eða tekið lagið í tveimur af karaoche herbergjum staðarins – þar sem hljómgæðin verða ekkert minna en mögnuð.
Mikið verður lagt upp úr því að gera upplifun gesta sem jákvæðasta og engu til sparað þegar kemur að útliti og þægindum, tækni, mat og drykk.
Framkvæmdastjóri og einn eigenda Oche Reykjavík, Mikael Harðarson, segist spenntur fyrir því að sjá verkefnið loks verða að veruleika.
„Við vinnum nú hörðum höndum að undirbúningi opnunar.
Framkvæmdir ganga vel en það er í mörg horn að líta og til þess að setja hluti í samhengi þá verða yfir 100 myndavélar inni á staðnum til þess að festa á filmu og skilja betur hvert verið er að kasta pílunum og eins til að fylgjast með því sem er að gerast á shuffleborðunum.
Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins og ýmsar nýjungar í boði sem við höfum ekki séð hér á landi áður“.
Sagði Mikael.
15 pílubásar, 1 VIP herbergi, 5 shuffleborð, 2 karaoche herbergi og sæti fyrir 230 – 300 gesti í mat og drykk, verða á staðnum og segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, mikla eftirvæntingu ríkja innan félagsins og Kringlunnar fyrir því að fá Oche í húsið.
„Opnun staðarins er stórt og mikilvægt skref í gagngerri endurnýjun á 3. hæð verslunarmiðstöðvarinnar og við fögnum því að taka þátt í verkefninu og hlökkum til samstarfsins við öfluga rekstraraðila Oche Reykjavík.
Að okkar mati færir staðurinn þjónustu- og skemmtiframboð Kringlunnar á áður óþekktan og spennandi stað og það er að sjálfsögðu ekkert annað en jákvætt“.
Segir Guðjón Auðunsson forstjóri Reita.
Ágúst Reynis á Grillmarkaðinum á meðal eigenda
Matseðillinn á Oche verður þróaður af einum af eigendum staðarins, Ágústi Reynissyni framreiðslumanni, en hann er kanóna á veitingasviðinu og landsmönnum kunnur sem einn eigenda veitingastaðanna Fiskmarkaðsins og Grillmarkaðsins.
Rík áhersla verður lögð á rétti sem hægt er að deila og verða meðal annars tapasréttir og pizzur eitthvað sem gestir geta gætt sér á. Ásamt þeim Ágústi og Mikael eru aðrir eigendur staðarins þeir Davíð Lúther Sigurðarson og Kristján Sveinlaugsson.
Tíundi Oche staðurinn sem opnar á heimsvísu
Oche í Kringlunni er tíundi Oche staðurinn sem opnar á heimsvísu og eru staðir keðjunnar til að mynda í Ástralíu, Dubai, Bretlandi, Svíþjóð og Noregi.
Troy Warfield, forstjóri The Social Gaming Group, félagsins sem á einkaleyfið fyrir Oche vörumerkinu, er að vonum glaður með áformin.
„Það er okkur ánægjuefni að koma inn á íslenskan markað og ég á ekki von á öðru en að Oche eigi eftir að gleðja Íslendinga og þá gesti sem landið sækja.
Það verður spennandi að sjá staðinn rísa í Kringlunni enda staðsetningin frábær og öll plön íslensku samstarfsaðilanna um útlit og starfsemina einnig.
Við bjóðum íslensku sérleyfishafana velkomna í alþjóðlega Oche teymið og alla hjá Oche Reykjavík, Reitum og Kringlunni einnig.“
Segir Troy Warfield forstjóri The Social Gaming Group.
Myndir: aðsendar / Tölvuteiknaðar myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel12 klukkustundir síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni11 klukkustundir síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Keppni2 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana