Vertu memm

Íslandsmót barþjóna

RCW: Kokkarnir og Ásgeir yfirbarþjónn á Slippbarnum bjóða uppá skemmtilegan bourbon mat-, og kokkteilseðil

Birting:

þann

Slippbarinn

Í dag miðvikudaginn 12. febrúar hefst Jim Beam bourbon week á slippbarnum.  Þessa viku verður lögð áhersla á bourbon kokkteila ásamt því hafa matreiðslumeistarar Slippbarsins sett saman skemmtilegan bourbon matseðil sem einnig verður í boði frá og með deginum í dag.

Sendiherra Jim Beam, Jonatan Ostblom-Smedje, sem staddur er hér á landi af tilefni Reykjavík Cocktail weekend 2014 (RCW), mun rifja upp gamla takta frá farsælum ferli sínum af nokkrum af flottustu börum Svíþjóðar en hann mun vera gestabarþjónn á Slippbarnum föstudags og laugardagskvöld.

Ásgeir Björnsson yfirbarþjónn á Slippbarnum hefur svo sett saman Jim Beam bourbon kokkteilseðil þar sem kokkteilarnir verða á sérstöku tilboðsverði þessa daga.  En Ásgeir fer oftar en ekki sínar eigin leiðir í kokkteilagerðinni og verður spennandi að sjá hann og Jonatan leiða saman hesta sína.

Matseðill Jim Beam Bourbon week 12. – 15. febrúar 2014 á Slippbarnum:

Grilluð hörpuskel með beikon- og Bourbon marmelaði.

Stökkir kjúklingavængir í Bourbon „hot sauce“ með  jógúrt dressingu.

Cheddar og serrano  krókettur með Bourbon mæjó.

Tættur grís í Bourbon „bbq“ á mjúkri hveitiköku með súrsætu káli.

Allir réttir á 1.290,- kr. stk.

Kokkteilar

RATTLESNAKE
Bourbon, hunang, absinth, eggjahvita, sítrónusafi, creole bitter

WINTER SOUR
Epla og kanil infusað red stag, peru og timjan síróp, sítrónusafi, múskat

BLOOD AND SAND (RYE)
Rye, rauður vermut, cherry heering, appelsínusafi

SMOKEY OLD FASHONED
Bourbon, bitterar, reykt te síróp

Jonatan mun einnig í tilefni af Reykjavik Cocktail weekend 2014 halda Jim Beam master class á Hótel Marina laugardaginn 15. febrúar annars vegar klukkan 12:00 og síðan annað í kjölfarið klukkan 15:00 og mun hann þar fara þar yfir sögu áfengis og sérstaklega viskísögu Ameríku. Að því loknu mun hann leiða smökkun á Jim Beam bourbon línunn. Hægt er að senda skráningu á netfangið [email protected] og hvetjum við fólk til að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara.

 

Mynd: af facebook síðu Slippbarsins.

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið