Starfsmannavelta
Nýr yfirkokkur á veitingastaðnum Aurora á Akureyri
Nýr yfirkokkur hefur verið ráðinn á veitingastaðinn Aurora á Icelandair Hótel Akureyri. Það mun vera hann Ómar Stefánsson sem lærði fræðin sín í Danmörku á veitingastaðnum Saison í Hellerup á árunum 2003 til 2007. Hann er 33 ára gamall og hefur unnið á Vox, Dill, Snaps og nú síðast á Slippbarnum á Marina Hótel.
Freisting.is heyrði í honum og forvitnaðist um nýjan matseðil sem fer í gang á næstu dögum.
„Við munum stíla inn á að nota sem mest hráefni úr fallegu sveitinni hér fyrir norðan og allt sem ferskast. Matseðillinn stendur saman af 4 forréttum, 4 aðalréttum og 3 eftirréttum, og verður breytilegur eftir árstíð. Bara gaman“ segir Ómar hress.
Hér má sjá nokkra rétti sem verða á nýja matseðlinum:
Veisla úr Eyjafirðinum
Kræklingur gufusoðin í kalda bjór, franskar, estragon og hvítlauks aioli
Rauðspetta og hörpuskel
Steikt rauðspetta og hörpuskel, heimalagað remúlaði, grænkál, brúnað smjör og söl
Nautasteikin
Grilluð ribeye steik, jarðskokkar, blaðlaukur, bakaðar kartöflur og ferskt salat
Hvítt súkkulaði og jarðaber
Hvítsúkkulaðimús, jarðaber frá Eiríki á Silfurtúni, estragon og stökkt haframjöl
Ómar tekur við starfinu af Hallgrími Jónassyni sem er fluttur til Noregs að vinna á Nordfjord Hotellí Nordfjordeid.
Freisting.is óskar þeim báðum góðs gengis á nýjum stöðum.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni4 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Frétt6 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt2 dagar síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanEldur er aftur fáanlegur fyrir ostunnendur




