Nemendur & nemakeppni
Pylsugerð er ákveðin listgrein í kjötiðnaði – Rúnar Ingi kenndi nemendum pylsugerð í 2. bekk í matreiðslu í VMA
Svo einfalt er málið ekki að pylsur séu bara pylsur! Pylsugerð er ákveðin listgrein í kjötiðnaði og víða um lönd er hún í hávegum höfð og úrvalið er lyginni líkast. Enda er það svo að hægt er að fara óteljandi leiðir í að búa til pylsur. Hugmyndafluginu eru engar skorðar settar í pylsugerð.
Rúnar Ingi Guðjónsson, kjötiðnaðarmaður og gæðafulltrúi í Kjarnafæði-Norðlenska, kann eitt og annað fyrir sér í pylsugerð og hann miðlaði úr viskubrunni sínum í vikunni til nemenda í 2. bekk í matreiðslu í VMA. Nemendur þreifuðu sig áfram með ólíkar uppskriftir í pylsugerð þar sem grunnhráefnið var úr ýmsum áttum: svínakjöt, lambakjöt, kalkúnn og kjúklingur. Fitan er mikilvæg, um það bil fimmtungur af hrærunni. Síðan er notað salt og allskonar krydd og eilítið kartöflumjöl til þess að líma hræruna vel saman.
Þessar myndir voru teknar af nemendum og kennurum þeirra, Rúnari Inga, og Ara Hallgrímssyni, þegar unnið var að pylsugerðinni sl. þriðjudag.
Fjölbreyttir pylsuréttir voru síðan á borð bornir fyrir gesti í gær. Hilmar Friðjónsson mætti með myndavélina.
- Ari Hallgrímsson matreiðslumeistari og brautastjóri matvælabrautar VMA
Myndir: vma.is / Hilmar Friðjónsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel15 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf








