Uppskriftir
Rófuborgari með paprikusalsa og kryddjurtakotasælu
1 stór rófa
1 hvítlauksrif
8 basilíkublöð
4 stönglar steinselja
4 msk. heslihnetuolía
salt og nýmulinn pipar
4 þroskaðir tómatar
200 g niðurlögð rauð paprika
½ rauður chili-pipar
fræ úr ¼ af granatepli
10 pistasíuhnetur
8 msk. kotasæla
hrökkbrauð
grænkálsblöð
Aðferð:
Rófan skræld og skorin í fjórar álíka þykkar sneiðar. Hvítlaukur og kryddjurtir maukað vel saman og heslihnetuolíunni bætt við. Helmingnum af maukinu smurt á rófurnar, saltað og piprað.
Rófusneiðar og tómatar bakað í u.þ.b. 15 mínútur í 200°C heitum ofni. Paprika og chili-pipar saxað niður og granateplafræjum blandað saman við. Hinum helmingnum af kryddjurtamaukinu hrært saman við kotasælu.
Pistasíuhnetur ristaðar og muldar gróft. Grænkál bakað við 130°C í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til það er orðið stökkt. Setjið hrökkbrauð á disk og helminginn af paprikusalsanu á kexið, síðan rófuna, þá bakaða tómatinn og kotasæluna.
Setjið restina af paprikusalsanu til hliðar, dreifið pistasíuhnetunum yfir og að lokum stökku grænkálinu.
Höfundur er Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Frétt5 dagar síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Keppni2 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt5 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanLokað hjá Mjólkursamsölunni mánudaginn 25. maí




