Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Nóg um að vera á vorönn 2024 í matvælagreinum í VMA

Birting:

þann

Nóg um að vera á vorönn 2024 í matvælagreinum í VMA

Á vorönn 2024 býður Verkmenntaskólinn á Akureyrir (VMA) upp á nám í 2. bekk í matreiðslu og framreiðslu og ennig er stefnt á nýjan námshóp í lotunámi í matartækni.

Nám í þessum greinum, sem allar eru undir braut matvæla- og ferðagreina í VMA, er háð því að nægilega margir skrái sig í það. Þeir sem hafa starfsreynslu í þessum greinum er bent á þann möguleika að fara í raunfærnimat. Upplýsingar um raunfærnimat eru hjá símenntunarmiðstöðvum t.d. hjá  SÍMEY hér á Akureyri.

Opnað var fyrir innritun á vorönn 2024 1. nóvember sl.

2. bekkur í matreiðslu

Undanfari náms í bæði matreiðslu og framreiðslu er grunnnám matvælagreina sem er tveggja anna nám og kennt árlega í VMA. Til þess að læra matreiðslu að loknu grunnnáminu er fyrst setinn 2. bekkur og síðasti hluti námsins í skóla er 3. bekkur. Að honum loknum og áskildum starfstíma í faginu geta nemendur þreytt sveinspróf og sett þar með punktinn yfir i-ið.

VMA hefur undanfarin ár boðið upp á bæði 2. og 3. bekk í matreiðslu og þar með fullmenntað fjölmarga matreiðslumenn. Ætlunin er að hefja nám í matreiðslu í 2. bekk við upphaf vorannar í janúar nk. ef næg þátttaka fæst. Náminu verður lokið á vorönn. Það verður síðan kynnt síðar hvenær 3. bekkurinn verður næst í boði. Síðasti hópurinn í matreiðslu var brautskráður frá VMA sl. vor.

2. bekkur í framreiðslu

Á síðasta skólaári urðu merk tímamót þegar VMA brautskráði fyrsta námshópinn í framreiðslu. Námið hófst á haustönn 2022 og lauk á vorönn 2023 og var bæði kenndur 2. og 3. bekkur. Nemendur brautkráðust frá skólanum sl. vor. Ef nægileg þátttaka næst verður nám í 2. bekk í framreiðslu á vorönn 2024. Eðli málsins samkvæmt er mikilvægt að geta boðið upp á nám í framreiðslu á sama tíma og matreiðslunámið.

Matartækni

Matartækni er sett upp sem lotunám og að nemendur geti stundað það með vinnu. Reynslan hefur sýnt að námið sækja nemendur á öllum aldri, margir hafa unnið lengi í matvælageiranum, t.d. í mötuneytum en vilja með náminu auka við þekkingu sína og fá starfsréttindi.

Bæði hafa nemendur farið í matartækninámið að loknu grunnnámi matvælagreina og einnig hafa nemendur, sem sumir hafa lengi unnið í faginu, farið í námið að loknu raunfærnimati.

Fullt matartækninám er á þriðja þrepi og er í þrjár annir. Einnig geta nemendur valið að ljúka tveggja anna námi á öðru þrepi til réttinda sem matsveinar. Á hverri önn eru 4-5 námslotur í skóla og er námið blanda af verklegu og bóklegu. Á föstudegi er kennt kl. 13-18 en á laugardegi kl. 8 til 16. Á milli lota leysa nemendur verkefni í fjarnámi.

Hér er umfjöllun frá síðasta ári um nám í matartækni í VMA.

Þeir sem hafa áhuga á námi í 2. bekk í matreiðslu og framreiðslu og lotunámi í matartækni eru hvattir til að sækja um sem fyrst.

Upplýsingar um námið veit Benedikt Barðason aðstoðarskólameistari og einnig Ari Hallgrímsson brautarstjóri matvælabrautar Steinunn Heba Finnsdóttir kennari í framreiðslu og Marína Sigurgeirsdóttir sem hefur umsjón með námi í matartækni.

Opnað var fyrir umsóknir 1. nóvember sl.

Mynd: vma.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið