Nemendur & nemakeppni
Átta nemendur hófu nám í kjötiðn við VMA – Myndir
Núna á haustönn hófu átta verðandi kjötiðnaðarmenn nám í kjötiðn við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA). Námið er í nánu samstarfi við Kjarnafæði-Norðlenska og þar eru allir þessir átta nemendur við störf – fjórir í starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri og fjórir á Svalbarðseyri.
Kjötiðn er faggrein sem fellur undir nám á matvælabraut VMA. Eins og hér má sjá þurfa nemendur að hafa lokið ákveðnum áföngum grunnnáms matvælagreina til að hefja nám í kjötiðn og einnig þurfa þeir að vera á námssamningi í faginu.
Námið er bæði verklegt og bókleg fagnám. Bóklegi hlutinn er í fjarnámi en Rúnar Ingi kennir verklega þáttinn þrjá daga í mánuði. Kennt er í húsnæði við Fjölnisgötu á Akureyri þar sem höfuðstöðvar Kjarnafæðis voru áður.
Miðað er við að nám í kjötiðn sé þrjár annir í skóla – auk áskilins tíma í verklegu námi.
Skortur hefur verið á lærðum kjötiðnaðarmönnum og því ber að fagna að nú séu þessir átta nemendur komnir á fullt í námi til fullgildra starfsréttinda í kjötiðn.
Síðastliðinn föstudag komu nemendur og Rúnar Ingi lærifaðir þeirra upp í VMA og kynntu afrakstur vinnu sinnar að undanförnu. Þar gaf að líta mismunandi útfærslur í lamba-, nauta- og svínakjöti.
Starfsmenn skólans létu ekki happ úr hendi sleppa og keyptu dýrindis steikur fyrir helgina. Þessar myndir voru teknar við það tækifæri.
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni4 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn4 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn5 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag






