Vertu memm

Keppni

Landslið bakara hreppti 2. sætið í Nordic Bakery Cup

Birting:

þann

Landslið bakara

Frá keppninni í Weinheim í Þýskalandi

Landslið bakara keppti í Norðurlandameistaramóti bakara sem haldið var 11.–12. september s.l. í Weinheim í Þýskalandi.  Landsliðið hreppti 2. sætið í keppninni sem er glæsilegur árangur.

Landsliðið hefur æft mikið síðastliðnar vikur.  Er þetta í annað sinn sem að íslenska bakaralandsliðið keppir í Nordic Bakery Cup, sem var árið 2018 og komst Ísland því miður ekki á verðlaunapall og hafnaði í fjórða sætið.

Meðlimir í landsliði bakara 2023 eru:

Stefán Pétur Bachmann Bjarnason hjá Hygge — Fyrirliði

Matthías Jóhannesson hjá Passion Rvk

Smári Yngvason frá Gæðabakstri

Haraldur Árni Þorvarðarson er landsliðþjálfari

Þema keppninnar var „hope for the future“ og þurftu hvert lið að framleiða skrautstykki, vínarbrauð, croissant, sætdeig.

Íslenska bakaralandsliðið mun keppa á heimsmeistaramóti bakara í München, 23. október 2023.

Mynd: facebook / Akademie Bäckerhandwerk Weinheim

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið