Vertu memm

Markaðurinn

Námskeið – Súrkálsgerð

Birting:

þann

Sauerkraut - Súrkál

Það er margt hægt að gera til að bæta heilsuna. Eins og flestir hafa heyrt er góð melting og heilbrigð þarmaflóra okkur afar mikilvæg. En hvað getum við gert sjálf til að bæta hana?Á þessu námskeiði leiða saman hesta sína Birna G. Ásbjörnsdóttir, einn helsti sérfræðingur landsins í þarmaflórunni og súrkálsdrottningin Dagný Hermannsdóttir.

Áhersla er lögð á að skoða áhrif örveruflóru þarmanna á heilsu. Farið er yfir hvernig mataræði og mjólkursýrugerlar geta haft jákvæð áhrif á heilsu. Einnig skoðað hvað getur raskað örveruflóru meltingarvegar og hvaða er til ráða. Rýnt verður í nýjustu rannsóknir á mjólkursýrugerlum og súrkáli í tengslum við heilsu.Praktískt, skemmtilegt, fræðilegt, og bragðgott námskeið.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Þarmaflóruna og meltingarveginn.
  • Áhrif þarmaflóru á heilsu.
  • Hvað mjólkursýrugerlar geta gert fyrir okkur.
  • Hvað vísindin segja um súrkál og mjólkursýrugerla.
  • Súrkálsgerð.Að njóta þess að borða súrkál og annað gerjað grænmeti.

Ávinningur þinn

  • Lærir að gera þitt eigið súrkál.
  • Færð að smakka fjöldann allan af ljúffengum gerðum af súrkáli.
  • Fræðist um mikilvægi þarmaflórunnar.
  • Öðlast innsýn í hlutverk mjólkursýrugerla í þessu samhengi.

Skráning hér.

HVAR OG HVENÆR

DAGSETNING KENNT FRÁ TIL STAÐSETNING
21.11.2023 þri. 19:00 22:00 Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
23.11.2023 fim. 19:00 22:00 Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7

Hefst 21. nóv. kl: 19:00

  • Lengd: 6 klukkustundir
  • Kennarar: Birna G. Ásbjörnsdóttir og Dagný Hermannsdóttir
  • Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
  • Fullt verð: 43.900 kr.-
  • Verð til aðila IÐUNNAR: 10.900 kr.-

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið