Vín, drykkir og keppni
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2013
Keppnin um Gyllta Glasið 2013 var haldið í 13. sinn undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Í ár var verðflokkur vína í keppni frá 2.490 kr. til 3.500 kr og máttu vínin koma frá öllum heiminum og völdu vínbirgjar vínin sem þeir lögðu til í þessa keppni.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Hótel Hilton Nordica mánudaginn og þriðjudaginn 13. – 14. maí s.l. Í ár fékk hinn almenni neytandi að sitja í dómnefnd og smakka vínin með færustu smökkurum landsins, vínþjónum, vínrýnum, fagmönnum og öðrum sérvöldum smjattpöttum. Alls voru það 36 manns sem smökkuðu og dæmdu vínin samkvæmt Parker skala. Yfirdómari var Alba E H Hough vínþjónn ásamt sérlegri aðstoðarkonu sinni Sigrúnu Þormóðsdóttir.

Þátttakan í Gyllta glasinu í ár var mjög góð en alls skiluðu sér 97 vín til leiks frá 10 vínbirgjum. 10 hvítvín og 10 rauðvín urðu svo fyrir valinu og hlutu Gyllta glasið 2013. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2013

Vínþjónasamtökin vilja þakka öllum birgjum fyrir frábæra þáttöku og óskum sigurvegurum til hamingju.
Hilton Hótel á hrós skilið frá okkur fyrir að lána okkur topp aðstöðu fyrir smökkunina. Alba og hennar teymi, Sigrún, Steingrímur og Ástþór fyrir frábært skipulag og úrvinnslu að keppninni.


f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Þorleifur Sigurbjörnsson
Ritari/gjaldkeri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Keppni17 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina



