Frétt
Spretthópur um alvarlega stöðu í matvælaframleiðslu

Hópurinn skilar skýrslu til ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi.
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna spretthóp sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Hópurinn skal skila af sér 13. júní nk. og verður niðurstaða vinnunnar kynnt fyrir ríkisstjórn 14. júní.
Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi.
Það liggur fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verða langvinn og því ljóst taka verður stöðuna alvarlega. Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Matvælaráðuneytið verður hópnum til aðstoðar.
Hópurinn skal greina einstaka valkosti í stöðunni. Huga þarf sérstaklega að fæðuöryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi.
,,Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi er björt, þrátt fyrir að nú þurfum við að yfirstíga tímabundnar áskoranir sem leiða af stríðsrekstri Rússa í Úkraínu,“
segir Svandís.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Keppni14 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn18 klukkustundir síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina



