Keppni
Besti heildar árangur Íslands til þessa
Sindri Guðbrandur Sigurðsson hafnaði í 2. sæti í Matreiðslumaður Norðurlandanna árið 2022. Það var keppandi Norðmanna sem vann keppnina í ár en mótið fór fram í Herning í Danmörku í dag og í gær.
Árangur íslensku keppendanna var framúrskarandi og íslensku keppendur í matreiðslukeppnunum voru í efstu sætum í öllum sínum flokkum.
Gabríel Kristinn Bjarnason sigraði í keppninni Ungkokkur Norðurlandana en eins og nafnið gefur til kynna er þetta keppni milli efnilegustu matreiðslumenn á norðurlöndunum. Matreiðslumeistarinn Sveinn Steinsson og útskriftarneminn Aþena Þöll höfnuðu i öðru sæti í keppninni “Nordic Green Chef”.
Keppnin Framreiðslumaður Norðurlandanna fór einnig fram í Herning í Danmörku, en það var Steinar Bjarnarson sem var fulltrúi Íslands þar. Því miður komst Steinar ekki í verðlaunasæti en hann stóð sig frábærlega í gríðarlega skemmtilegri en erfiðri keppni.
Besti heildar árangur Íslands til þessa
Sveinn og Aþena kepptu sem lið en keppnin hefur verið í undirbúningi hjá Norðurlanda-samtökum matreiðslumanna um nokkurt skeið og er gert ráð fyrir að þessi keppni eða sambærileg eigi eftir verða að alþjóðlegri keppni. “Þetta er betri árangur en ég hefði þorað að vona” sagði Sveinn þegar úrslitin voru kunngjörð. “En þetta er virkilega sætt.”
Frábær árangur sem byggt verður á til framtíðar
„Við erum algjörlega himinn lifandi með árangur okkar keppenda. Þau hafa staðið sig frábærlega og unnið þetta af mikilli fagmennsku,“
sagði Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem er staddur með liðinu í Herning.
„Nú fögnum við í kvöld og svo förum við á fullt í næsta verkefni sem er heimsmeistarakeppnin í Lúxemborg í nóvember komandi.“
Myndir: Brynja Kr Thorlacius
-
Markaðurinn7 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt5 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði







