Frétt
Veitingamenn óánægðir vegna framtíðarsýnar sóttvarnarnalæknis
Stjórn Samtaka Fyrirtækja í Veitingarekstri (SVEIT) hefur sent frá sér tilkynningu og lýsir yfir áhyggjum af framtíðarsýn Sóttvarnalæknis þar sem hann leggur til að veitingastaðir, krár og skemmtistaðir loki klukkan 23:00 öll kvöld vikunnar næstu misseri.
Þessi framtíðarsýn er eins og blaut tuska framan í stóran hluta veitingamarkaðarins sem hefur verið meira og minna óstarfhæfur frá því að veiran kom fyrst til landsins, að því er fram kemur í tilkynningu.
Krár og skemmtistaðir hafa þurft að lúta ströngustu sóttvarnarreglum með tilliti til opnunartíma, gestafjölda, skráningu gesta og grímuskyldu. Á þeim tíma hafa ekki verið færð fyrir því nein rök að fleiri smit hafi komið upp hjá fyrirtækjum á veitingamarkaði en hjá öðrum hópum í samfélaginu.
Þá lýsa samtökin yfir áhyggjum af því að skemmtunin færist einfaldlega annað en ljóst er að fólk mun ekki hætta að hittast og skemmta sér sér heldur færa sig í heimahús eða annað húsnæði þar sem ekkert eftirlit er. Þar mun myndast svipuð eða meiri hætta á hópsmiti og nú þegar er fyrir hendi á veitinga- og skemmtistöðum.
Í greininni starfa um 10.000 manns — að stórum hluta til ungt fólk sem mun missa vinnu við slíkar aðgerðir. Auk þess gerir ófyrirsjáanleikinn , sem blasir við greininni, henni ókleift að fara inni í veturinn.
Það er algerlega órökstutt hvers vegna þörf sé á svo hörðum aðgerðum sem beinast að veitingamarkaðnum þegar hundruð manna hópast á aðra staði, t.d. á alþjóðaflugvöllinn í Keflavík, á sundstaði, í líkamsræktarstöðvar, verslanamiðstöðvar og á íþróttaleiki.
SVEIT skorar því á sóttvarnalækni að veita haldbær rök, studd gögnum og tölulegum upplýsingum, um nauðsyn þess að skerða afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða svo verulega með tilheyrandi tjóni fyrir greinina.
Mynd: úr safni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel9 klukkustundir síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Markaðurinn7 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Frétt6 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum



