Markaðurinn
Skyr og fleiri vörur fá pappaskeiðar – Grjónagrautur án skeiða
Nú í byrjun júlí tók í gildi hér á landi tilskipun frá Evrópusambandinu sem miðar að því að minnka plast í sjónum í Evrópu. Í ljós hefur komið að veiðarfæri og ýmiss konar einnota plast er 70% af plasti á ströndum í álfunni og hefur því verið ákveðið að banna hluti á borð við einnota plastskeiðar, plaströr, eyrnapinna, plastpoka, plastbolla og fleira. Markmiðið er því að draga úr plastmengun í sjónum.
MS hefur unnið hörðum höndum að því í samstarfi við birgja sína að tryggja ný papparör og pappaskeiðar (og í sumum tilvikum tréskeiðar) á vörur fyrirtækisins. Nú fá Ísey skyr og fleiri vörur frá MS pappaskeiðar í stað plastskeiða.
Heimilis grjónagrauturinn hefur hingað til verið tilbúinn til að neyta á ferðinni með kanilsykri og plastskeið í toppi en vegna nýju reglnanna þurfti að taka plastskeiðina úr. Sökum þess hversu þykkur grjónagrauturinn er hentuðu lausnir á borð við pappaskeiðar og tréskeiðar ekki og grauturinn er því ekki lengur með skeið í toppi.
Kanilsykurinn verður samt á sínum stað svo að það verður áfram hægt að neyta á ferðinni (bara muna að grípa með sér skeið ).
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn3 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember





