Frétt
Aflétting allra samkomutakmarkana 26. júní
Um 87% þeirra sem áformað er að bólusetja hafa nú fengið a.m.k. eina sprautu, um 60% eru fullbólusett gegn Covid-19 og nú ættu öll sem ekki var áður búið að bjóða bólusetningu að hafa fengið slíkt boð. Áætlanir stjórnvalda um framgang bólusetningar og afléttingu samkomutakmarkana hafa því gengið eftir að fullu.
Takmarkanir innanlands vegna Covid-19 hafa verið breytilegar á tíma heimsfaraldursins eftir stöðunni hverju sinni. Nándarregla og fjöldatakmarkanir hafa verið viðvarandi allt tímabilið, grímuskylda í einhverri mynd hefur gilt um langa hríð. Takmarkanirnar hafa gert það að verkum að allri mögulegri starfsemi hefur verið þröngt sniðinn stakkur og á tímabilum legið alveg niðri. Menningarlíf, íþróttastarf, skólastarf, veitingarekstur, ferðaþjónusta og fjölmargt annað hefur markast af gildandi reglum um samkomutakmarkanir á hverjum tíma. Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um afléttingu allra samkomutakmarkana verða reglur um samkomur ekki háðar öðrum takmörkunum en almennt gilda í samfélaginu og giltu áður en heimsfaraldurinn skall á.
Landamærin: Hætt að skima börn og fólk með vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnareglum á landamærum sem taka gildi 1. júlí og gilda til 15. ágúst. Þessar breytingar eru einnig í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis.
- Þann 1. júlí verður sýnatökum hætt hjá þeim sem framvísa gildum vottorðum um bólusetningu með bóluefnum sem Lyfjastofnun Evrópu og/eða WHO hafa viðurkennt. Bólusetning telst gild tveimur vikum eftir að hlutaðeigandi fékk síðari skammt bóluefnis, en hafi fólk verið bólusett með bóluefni Janssen þarf ein vika að hafa liðið frá bólusetningu.
- Sýnatöku verður hætt hjá börnum sem fædd eru 2005 eða síðar.
- Þau sem framvísa gildum vottorðum um bólusetningu og fyrri sýkingu af völdum Covid-19 og börn fædd 2005 og síðar þurfa ekki að framvísa neikvæðum PCR-vottorðum við komuna til landsins frá og með 1. júlí.
- Í tilvikum þeirra sem ekki geta framvísað gildum vottorðum um bólusetningu gegn Covid-19 eða fyrri Covid-19 sýkingu þarf áfram að framvísa neikvæðu PCR-vottorði við byrðingu og á landamærum, undirgangast skimun með PCR-prófi við komuna til landsins og dvelja í sóttkví í 5 daga og undirgangast seinni skimun að henni lokinni.
Minnisblað sóttvarnalæknis um afléttingar innanlands
Minnisblað sóttvarnalæknis um landamæri
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni3 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Keppni7 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni






